Þór Sigurpáll Árni Aðalsteinsson verður annar þjálfara Þórs.
Þór Sigurpáll Árni Aðalsteinsson verður annar þjálfara Þórs. — Ljósmynd/Þór
Handknattleiksdeild Þórs hefur samið við bræðurna Geir Kristin Aðalsteinsson og Sigurpál Árna Aðalsteinsson um að taka við þjálfun karlaliðs félagsins. Gera þeir samning út yfirstandandi leiktíð. Bræðurnir taka við Þórsliðinu af Stevce Alusovski, sem var sagt upp störfum á dögunum

Handknattleiksdeild Þórs hefur samið við bræðurna Geir Kristin Aðalsteinsson og Sigurpál Árna Aðalsteinsson um að taka við þjálfun karlaliðs félagsins. Gera þeir samning út yfirstandandi leiktíð.

Bræðurnir taka við Þórsliðinu af Stevce Alusovski, sem var sagt upp störfum á dögunum. Liðið er í fimmta sæti 1. deildarinnar, Grill 66-deildarinnar, með sjö stig eftir átta leiki. Þeir eru báðir uppaldir hjá Þór.