— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Síríuslí 30 ml Hvítserkur romm 15 ml Rökkvi heitt súkkulaði Ofan á: Þeyttur rjómi og saltkaramellusúkkulaðispænir Ílát: Kaffibolli Skraut: Súkkulaðispænir Síríuslí er „byggður“ drykkur og því fljótlegt að búa hann til ef maður er með öll hráefnin við höndina

Síríuslí

30 ml Hvítserkur romm

15 ml Rökkvi

heitt súkkulaði

Ofan á: Þeyttur rjómi og saltkaramellusúkkulaðispænir

Ílát: Kaffibolli

Skraut: Súkkulaðispænir

Síríuslí er „byggður“ drykkur og því fljótlegt að búa hann til ef maður er með öll hráefnin við höndina. Við byrjum á að setja rommið í bolla og hellum svo yfir rjúkandi heitu súkkulaði.

Að lokum léttþeytum við rjómann og hellum honum varlega yfir heita súkkulaðið í bollanum og skreytum með súkkulaðispæni.

Hreppstjórakaffi

30 ml brennivín

15 ml kandíssíróp

kaffi hellt yfir

rjómi settur þar ofan á

Ílát: Kaffibolli

Skraut: Kandís

Hreppstjórakaffi er byggður drykkur og því fljótlegt að búa hann til ef maður er með öll hráefnin við höndina.

Við byrjum á að setja brennivínið og kandíssírópið í bolla og bætum svo við rjúkandi heitu kaffi.

Að lokum léttþeytum við rjómann og hellum honum varlega yfir kaffið í bollanum og skreytum með muldum kandísmolum.

Rúdólf

40 ml Angelica-gin

20 ml krækiberjalíkjör frá 64 Reykjavík Distillery

20 ml límónusafi

15 ml sykursíróp

Ílát: Lágt glas (e. old fashioned)

Skraut: Hreindýramosi

Við setjum öll hráefnin í hristara, fyllum hann alveg upp að brún með klaka og hristum hressilega í 10-15 sekúndur eða þar til hristarinn er orðinn vel kaldur.

Að lokum er drykknum hellt í gegnum sigti ofan í kælt lágt glas með klaka. Hann er svo skreyttur með hreindýramosa.

Skyrgámur

30 ml Kötlu-vodki

20 ml bláberjalíkjör frá 64 Reykjavík Distillery

20 ml vanillusíróp

30 ml rjómi

1 barskeið skyr

Ílát: Kokteilglas

Skraut: Múskat

Við setjum öll hráefnin í hristara, fyllum hann alveg upp að brún með klaka og hristum hressilega í 10-15 sekúndur eða þar til hristarinn er orðinn vel kaldur.

Að lokum er drykknum hellt í gegnum sigti ofan i kælt kokteilglas og múskat rifið yfir drykkinn.

Vanillusírópið er útbúið þannig að blandað er saman vatni og sykri í jöfnum hlutföllum, vanillustöng skorin í tvennt og látin liggja í sírópinu yfir nótt.