Krónhjörtur Kjötið er tekið út úr kæli um 3-4 tímum fyrir eldun svo það sé ekki kalt þegar það fer á pönnuna. Kryddað með salti og pipar. Þá er það sett á mjög heita pönnu og steikt þar til góð húð myndast á kjötinu

Krónhjörtur

Kjötið er tekið út úr kæli um 3-4 tímum fyrir eldun svo það sé ekki kalt þegar það fer á pönnuna.

Kryddað með salti og pipar.

Þá er það sett á mjög heita pönnu og steikt þar til góð húð myndast á kjötinu.

Þá er því snúið við og smjöri bætt á pönnuna ásamt timíangreinum og hvítlauk.

Sett í eldfast mót og inn í ofn á 180°C í 5 mínútur.

Þá er kjötið tekið út úr ofninum í 5 mínútur og síðan sett aftur inn í ofn í 5 mínútur.

Að lokum er kjötið látið hvíla í að minnsta kosti 5 mínútur áður en það er skorið.

Gráðaostasósa

150 g sýrður rjómi
150 g majones
100 g gráðaostur
safi úr hálfri sítrónu
1 tsk. hunang
salt og pipar

Allt nema salt og pipar sett saman í matvinnsluvél og unnið þar til sósan er kekkjalaus. Smakkað til með salti og pipar.

Villisveppaostasósa

1 stk. villisveppaostur
½ stk. piparostur
500 ml matreiðslurjómi
1 tsk. villikraftur
vatn

Rjóminn hitaður í potti. Á meðan eru ostarnir rifnir niður á grófu rifjárni og bætt út í heitan rjómann.

Hrært þar til ostarnir eru alveg bráðnaðir og smakkað til með villikrafti. Ef sósan er of þykk má þynna hana með vatni.