30 ára Hermann er úr Mosfellsbæ en býr í Grafarholti. Hann er flugumferðarstjóri hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. Hermann rekur einnig byggingafyrirtækið HD ehf. sem sér um að byggja atvinnuhúsnæði

30 ára Hermann er úr Mosfellsbæ en býr í Grafarholti. Hann er flugumferðarstjóri hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. Hermann rekur einnig byggingafyrirtækið HD ehf. sem sér um að byggja atvinnuhúsnæði. Áhugamálin eru golf og útivist.

Fjölskylda Maki Hermanns er Kolbrún Fjóla Sölvadóttir, f. 1992, nemi á leið í meistaranám í félagsráðgjöf. Börn þeirra eru Sævar Logi, f. 2020, og Elísabet Von, f. 2022. Foreldrar Hermanns eru hjónin Eyþór Ármann Eiríksson, f. 1961, byggingameistari, og Kristrún Sigursteinsdóttir, f. 1967, para- og kynlífsráðgjafi. Þau eru búsett í Mosfellsbæ.