Kristjana er kokkur sem hugar að heilsunni.
Kristjana er kokkur sem hugar að heilsunni. — Morgunblaðið/Ásdís
Ég borða ekki eftir klukkunni og er á því að maður eigi að borða þegar maður er svangur. Ef maður er ekki svangur í hádeginu, af hverju ekki að bíða aðeins?

Gott er að koma inn úr kuldanum á hlýlegt heimili Kristjönu Steingrímsdóttur heilsukokks. Jana, eins og hún er kölluð, ber fram rjúkandi heitt jurtate og þá er okkur ekkert að vanbúnaði að hefja spjallið. Kristjana er nýlega flutt heim frá Lúxemborg þar sem hún bjó ásamt manni sínum Sigþóri Júlíussyni og þremur dætrum þeirra. Þar vann hún sem yfirkokkur ásamt því að vera meðeigandi á Happ, en staðurinn sérhæfir sig í hollum morgunmat, hádegismat og eftirréttum.

Heilbrigði og hollur matur

Spurð um bakgrunninn segist Jana vera viðskiptafræðingur að mennt en áhuginn fljótlega beinst að heilsunni.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á heilbrigði og hollum mat. Í Lúxemborg fékk ég mikinn áhuga á hráfæði og fann þar heilsustað þar sem ég var að kynna og setja saman hráfæði og bar fram „Jana's plate“ einu sinni í viku,“ segir Jana og segir það hafa undið upp á sig. Árið 2010 opnaði svo Happ sem stendur fyrir Healthy & pure.

„Happ er ennþá starfandi og heldur áfram að vaxa,“ segir Jana og segir Lúxemborgarbúa hafa tekið vel í heilsufæðið.

„Ég lærði svo heilsumarkþjálfun í fjarnámi frá New York sem var rosalega skemmtilegt og í kjölfarið fór ég að hitta kúnna, vera með hópefli og námskeið í heimahúsum. Þá kom ég með allar vörur og allt grænmetið og eldaði fyrir hópinn, sem oftast voru 10-15 konur sem höfðu áhuga og vildu læra heilsusamlegar nýjungar í eldhúsinu. Þetta voru mjög skemmtilegar kvöldstundir þar sem við enduðum svo kvöldið á að borða nokkra rétti og spjalla saman.“

Elskar litríkan mat

Eftir fimmtán ár erlendis er Jana nú komin heim og segist vera að þreifa sig áfram á heilsumarkaðnum hér en hún er einnig lærður jógakennari.

„Ég hef áhuga á fólki og heilsu og hvað hægt er að gera með mataræði. Ég er byrjuð að pósta réttunum mínum á Instagram en ég er mikið fyrir að hafa allt sem einfaldast,“ segir Jana, en hana má finna á Instagram undir nafninu janast.

Jönu er mikið í mun að fólk borði góðan og hollan mat, án þess að kvelja sjálft sig með endalausum reglum.

„Ég vil ekki hafa boð og bönn heldur frekar bjóða upp á alls konar holla rétti með öðru þannig að mögulega borðar fólk þá meira af því holla og minna af því óholla. Ég er sjálf alæta og elska góðan og litríkan mat. Langoftast sér maðurinn minn um að matreiða kjötið og fiskinn en ég sé um grænmetið og allt meðlæti. Við borðum alltaf saman fjölskyldan og oft eldum við öll saman. Mér finnst svo gaman að vinna með liti og elska að hafa matinn litríkan,“ segir hún og segist nota mikið döðlur, ber, ávexti, hnetur og fræ í salötin sín svo eitthvað sé nefnt.

„Matur verður að vera fallegur.“

Jana segist gjarnan undirbúa grænmeti sem hún getur svo gripið í úr ísskápnum og sparað þannig tíma.

„Þá er léttara að elda,“ segir hún og segist til að mynda baka rauðrófu í bitum sem hún svo á tilbúna í ísskápnum til að skella í salöt.

Jana segir salötin oft slá í gegn.

„Mjög oft í matarboðum hjá okkur hjónunum er meira borðað af salötunum og meðlætinu en kjötinu og fiskinum sem er líka á borðum.“

Breyti gjarnan uppskriftum

Við ræðum um bakstur og segist Jana baka mikið.

„Ég er ekki mikið fyrir að flækja hlutina og hendi yfirleitt bara öllu saman. Ég er ekkert að hræra egg og sykur saman fyrst heldur set bara allt í skálina í einu. Ég nota alveg sykur en reyni að minnka hann eða setja döðlur, kókossykur eða hlynsýróp í staðinn fyrir hvítan sykur og ég breyti gjarnan uppskriftum,“ segir Jana.

„Fólk þarf að finna hjá sjálfu sér hvað hentar því,“ segir Jana og segist geta gefið fólki góð ráð varðandi sykurfíkn, en ekki hentar eitt öllum.

„Fólk þarf að finna sína leið án þess að neita sér um kökusneiðina sem það langar í,“ segir Jana og segist gjarnan búa til hrákökur sem eru næringarríkar.

„Smátt og smátt getur fólk tamið sér hollari kökur eða að minnka skammta, en breytingar taka tíma og ekkert gerist á einni nóttu. Það er gott að taka einn hlut í einu fyrir en ekki ætla sér að breyta öllu því þá springur maður. Breytingar taka langan tíma.“

Ekki að eltast við öfgar

Jana segist sjálf stundum fasta þótt það sé ekki reglan. Hún segir föstur ekki henta öllum.

„Ég borða ekki eftir klukkunni og er á því að maður eigi að borða þegar maður er svangur. Ef
maður er ekki svangur í hádeginu, af hverju ekki að bíða aðeins? Mér finnst fínt að borða ekkert eftir kvöldmat því það er gott að leyfa líkamanum að hvíla sig, ná að melta vel og hreinsa sig. Mér finnst Íslendingar margir hverjir nasla mikið á milli mála. Maður á alveg að geta verið án matar í tvo, þrjá og upp í fimm tíma,“ segir Jana og brosir.

„Svo er gott að stjórna blóðsykrinum með því að borða holla og trefjaríka og vel samansetta máltíð því þegar maður er ekki vel nærður, fer mann að langa í nasl stuttu síðar. Íslendingar eru svolítið öfgakenndir; fólk á ýmist að borða lítið á tveggja tíma fresti, telja hverja kalóríu eða fasta tímunum saman. Þetta býr til óþarfa stress fyrir líkamann. Við þurfum öll góða næringu, steinefni og vítamín til að virka sem best og málið er að velja sem oftast það sem er hollast og næringarríkast.“

Kanilepli út í salat

Nú þegar jólin nálgast eiga margir það til að detta í óhollustu en Jana kann ráð við því.

„Ég er alveg með smákökur á borðum en passa að hafa líka hollmeti á boðstólum. Þannig getur maður fengið sér smá hollt og þá er auðveldara að fá sér bara smá af smákökunum,“ segir Jana og segir einnig hægt að baka smákökur sem eru næringarríkar og ljúffengar í senn. Lesendur geta einmitt spreytt sig á uppskriftum sem fylgja með á opnunni sem eru allar í hollari kantinum.

„Ég nota til dæmis mikið hnetur og möndlur, dökkt súkkulaði, kókos og sesamfræ,“ segir hún og sýnir blaðamanni uppskriftir í bók sinni Healthy & Pure. Bókin er stútfull af uppskriftum að hollum súpum, drykkjum, salötum, grænmetisréttum, kökum og eftirréttum.

„Ég bakaði risaskammt af sesamhátíðarsmákökum um helgina og þær kláruðust alveg um leið. Og þótt það sé hlynsíróp í þeim þá eru líka í þeim góðar fitusýrur og trefjar,“ segir Jana og segist meira að segja finna leiðir til að gera salöt svolítið jólaleg.

„Nú fyrir jólin er ég að baka epli í ofni með kanil og setja út í salöt,“ segir hún og blaðamaður hváir.

„Já, ég er alltaf að prófa eitthvað óvenjulegt og fólk er oft hissa,“ segir hún og hlær.

„En þetta er rosa gott!“