⅔ bollar glútenlausir hafrar eða venjulegt haframjöl
2 bollar vatn eða hnetumjólk að eigin vali
klípa af salti, himalaja- eða sjávarsalti
1 tsk vanilla
1 tsk kókosolía
2 tsk kanill
1-2 tsk hreint hlynsíróp, eftir smekk
1 epli, kjarnhreinsað og skorið í litla teninga
2 msk valhnetur, saxaðar gróft
Setjið hafrana/ haframjölið, salt og vatn/hnetumjólk í pott og látið sjóða við meðalhita, hrærið af og til þar til það þykknar. Takið af hitanum og hrærið vanillu, kanil, kókosolíu og helming af söxuðum eplum saman við. Hellið í skál og setjið afganginn af eplateningum, hlynsírópi og valhnetum yfir og stráið meiri kanil yfir.