Wahbi Khazri
Wahbi Khazri
Wahbi Khazri, sóknartengiliður karlaliðs Túnis í knattspyrnu, hefur tilkynnt að landsliðsskórnir séu komnir á hilluna. Í síðasta leik hins 31 árs gamla Khazri skoraði hann sigurmark Túnis í 1:0-sigri á ríkjandi heimsmeisturm Frakklands á miðvikudag á HM í Katar

Wahbi Khazri, sóknartengiliður karlaliðs Túnis í knattspyrnu, hefur tilkynnt að landsliðsskórnir séu komnir á hilluna. Í síðasta leik hins 31 árs gamla Khazri skoraði hann sigurmark Túnis í 1:0-sigri á ríkjandi heimsmeisturm Frakklands á miðvikudag á HM í Katar.

Sigurinn nægði Túnis ekki til þess að komast upp úr D-riðlinum og ákvað Khazri, sem leikur með Montpellier í Frakklandi, að láta staðar numið.