Peysufólk Þessi eru vel klædd, alveg funheit og verður aldeilis ekki kalt nú í jólamánuðinum.
Peysufólk Þessi eru vel klædd, alveg funheit og verður aldeilis ekki kalt nú í jólamánuðinum.
Svokölluð Haustpeysa í ár er flíspeysa, hönnuð af tónlistarmanninum og hönnuðinum Svavari Pétri Eysteinssyni, Prins Póló, sem lést nýlega. Hönnunin var gerð í samstarfi við 66°Norður og Havarí. Auk peysunnar er hægt að fá kórónu sem lýsir sannarlega upp skammdegið

Svokölluð Haustpeysa í ár er flíspeysa, hönnuð af tónlistarmanninum og hönnuðinum Svavari Pétri Eysteinssyni, Prins Póló, sem lést nýlega. Hönnunin var gerð í samstarfi við 66°Norður og Havarí. Auk peysunnar er hægt að fá kórónu sem lýsir sannarlega upp skammdegið.

Samhliða þessu góssi kemur út Haustpeysulagið 2022, Ég er klár. Lagið er eftir Svavar Pétur og textinn eftir Skarphéðin Bergþóruson. Lagið er sungið af Valdimar Guðmundssyni, Prins Póló og Hirðinni.

Ágóði af sölunni peysunnar rennur til Krafts, styrktarfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, og minningarsjóðs Prins Póló. Peysan verður seld í verslunum 66°Norður, á Laugavegi og í Faxafeni í Reykjavík og í netverslun.

Saga Haustpeysunnar hófst fyrir um 10 árum og þá með viðburði sem Svavar Pétur hélt á Óðinstorgi í Reykjavík. Innblásinn af einni af sínum uppáhaldshljómsveitum, Yo La Tengo, og laginu Autumn Sweater, bjó hann til facebookviðburð með nokkurra klukkutíma fyrirvara sem snerist um að fá fólk til að mæta á torgið í sinni uppáhaldshaustpeysu.

Eins og í fyrra verður Haustpeysufögnuðurinn haldinn á Fjölskyldukaffihúsinu Dal í Laugardal sunnudaginn 11. desember og eru öll hvött til að mæta í sinni fegurstu haustpeysu.