Fjölmargir tónlistarmenn gleðja landsmenn með fjölbreytilegu tónleikahaldi á aðventunni og í kvöld, föstudag, er komið að dúettinum Sycamore Tree sem heldur kl. 20.30 hátíðartónleika í Dómkirkjunni í Reykjavík

Fjölmargir tónlistarmenn gleðja landsmenn með fjölbreytilegu tónleikahaldi á aðventunni og í kvöld, föstudag, er komið að dúettinum Sycamore Tree sem heldur kl. 20.30 hátíðartónleika í Dómkirkjunni í Reykjavík. Þau Ágústa Eva og Gunni Hilmars koma fram ásamt fríðum flokki meðleikara og flytja tónlistina af nýrri plötu sinni, Colors. Einnig munu þau leika mörg uppáhaldsjólalaga sinna í fallegum búningi auk laga af jóla-stuttskífu þeirra sem kemur út í næstu viku.