Norður
♠ G
♥ Á83
♦ Á1065
♣ ÁKD85
Vestur
♠ ÁD2
♥ KG96
♦ KG
♣ 10963
Austur
♠ K1087
♥ D42
♦ 973
♣ G72
Suður
♠ 96543
♥ 1075
♦ D842
♣ 4
Suður spilar 5♦ doblaða.
Halldór Þorvaldsson hefur oft fengið betri spil. Hann var í suður með eina drottningu og hefði ekki orðið hissa á að lenda í vörn gegn slemmu. En örlögin og makker hans Magnús Sverrisson fengu honum annað verkefni. Vestur vakti á 1♦ (líklega Precision), Magnús doblaði, austur sagði 1♠, vestur hækkaði í 2♠ og Magnús sagði 3♣.
Halldór og Magnús eiga að baki langa samvinnu við spilaborðið og þótt kerfið sé ekki alltaf rætt í þaula er skilningurinn næmur. Halldór taldi víst að Magnús ætti tígul til hliðar og sagði 3♦ við 3♣, sem Magnús hækkaði snarlega í geim. Vestur doblaði og spilaði út spaðaás, svo hjartakóng í öðrum slag.
Halldór drap, henti hjörtum í hálauf og víxltrompaði upp í 11 slagi. Spilið er frá aðalsveitakeppni BK síðastliðinn fimmtudag og á hinu borðinu fengu sveitarfélagar Dóra og Magga átta slagi í einu grandi.