Kólumbíski knattspyrnumaðurinn Luis Díaz meiddist á hné á æfingu hjá enska liðinu Liverpool í Dubai um síðustu helgi og í gær var gefið út að hann yrði frá keppni í þrjá til fjóra mánuði. Díaz var nýbúinn að jafna sig af meiðslum sem hann varð fyrir í byrjun október
Kólumbíski knattspyrnumaðurinn Luis Díaz meiddist á hné á æfingu hjá enska liðinu Liverpool í Dubai um síðustu helgi og í gær var gefið út að hann yrði frá keppni í þrjá til fjóra mánuði. Díaz var nýbúinn að jafna sig af meiðslum sem hann varð fyrir í byrjun október. Hann missti af tíu leikjum Liverpool áður en hlé var gert á ensku úrvalsdeildinni vegna HM í Katar og ljóst er að liðið verður án hans í að minnsta kosti 13-14 leikjum í viðbót.