Það ærir margan óstöðugan að ær og kýr beygjast ær, um á, frá á, til ær og kýr, um kú, frá kú, til kýr
Það ærir margan óstöðugan að ær og kýr beygjast ær, um á, frá á, til ær og kýr, um kú, frá kú, til kýr. Rolla og belja eru skiljanlegar lausnir. Maður er sveigjanlegur, þótt fornmaður sé. En kveinkar sér þegar fé verður til „fés“ í stað fjár og kvartað er yfir aðbúnaði „fésins“. Ekki segjum við „fésmálaráðherra“.