Heimir Gamalíel Helgason, 15 ára körfuboltamaður úr Njarðvík og U15 ára landsliði Íslands, skoraði 29 stig í leik með jafnöldrum sínum hjá spænska stórliðinu Barcelona á dögunum. Heimir fór fyrir skömmu til æfinga með Zalgiris, öflugasta…
Heimir Gamalíel Helgason, 15 ára körfuboltamaður úr Njarðvík og U15 ára landsliði Íslands, skoraði 29 stig í leik með jafnöldrum sínum hjá spænska stórliðinu Barcelona á dögunum.
Heimir fór fyrir skömmu til æfinga með Zalgiris, öflugasta körfuknattleiksfélagi Litháens, og í kjölfarið fóru fleiri útsendarar að fylgjast með Njarðvíkingnum. Í framhaldinu var honum boðið til Barcelona þar sem hann lék fjóra leiki á æfingamóti með liðinu.