Stekkjastaur kom fyrstur til byggða í fyrri­nótt og kom við á Þjóðminjasafninu í gær. Þar hitti hann fyrir 2. og 3. bekk Urriðaholtsskóla og leikskólahópa frá Krikaskóla og Vesturborg. Jólasveinarnir sækja safnið heim, hver á fætur öðrum, dagana fram að jólum.