Ragnhildur Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru í harðri baráttu um að komast áfram á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi en þær hafa lokið þremur hringjum af fjórum á La Manga á Spáni
Ragnhildur Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru í harðri baráttu um að komast áfram á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi en þær hafa lokið þremur hringjum af fjórum á La Manga á Spáni. Ragnhildur lék á 72 höggum í gær og er á fimm höggum yfir pari í 43.-47. sæti. Guðrún Brá lék á 73 höggum og er á sjö höggum yfir pari í 55.-61. sæti. Sextíu efstu af þeim 156 sem taka þátt í mótinu komast á næsta stig.