Daníel Guðrúnarson Hrafnkelsson
Daníel Guðrúnarson Hrafnkelsson
Daníel Guðrúnarson Hrafnkelsson: "Á Akranesi er bæjarstjórn sem þykist vita meira en aðrir og ákveður allt á lokuðum fundum."

Á Akranesi er bæjarstjórn sem þykist vita meira en aðrir og ákveður allt eða margt á lokuðum fundum. En málið er að þeir geta ekki vitað allt, eins og þeir halda.

Nefnum sem dæmi vinnustaðinn Fjöliðjuna, sem er verndaður vinnustaður. Hún telur 78 starfsmenn ásamt leiðbeinendum. Út frá þekkingu sinni og reynslu vita þau best hver þörfin er og hvað þau vantar. Verkefni þeirra eru fjölbreytt og tækin sem þau nota eru af mismunandi gerðum og stærðum. Það þýðir að stærð rýmis eða húsnæðis þarf að miðast við það og hafa þarf í huga aðgengi fyrir alla, þar með talið hjólastóla.

Núna á að setja þessa starfsemi ásamt þorpinu í samfélagsmiðstöð í blokk. Hvað eiga börn og fatlaðir sameiginlegt? Ekki neitt. Oft er gert grín að fötluðum og oft á tíðum eru foreldrar meðvirkir. Svo ekki sé minnst á að sagt er að ekki megi vera með hávaða í blokk. En hvernig er það með börn? Eru þau ekki oft á tíðum með hávaða? Af hverju mega þá ekki vélar sem notaðar eru til að pakka fara þangað inn? Það er algjörlega út í hött.

Svo er það bæjarstjórnin sem ákvað þetta á lokuðum fundi án þess að hafa samráð við okkur sem vinnum þarna. Hvernig geta þeir vitað hvað við þurfum og viljum? Eru þeir að vinna þarna eða hafa þeir eitthvað verið í Fjöliðjunni af viti eða? Ég held ekki. Alla vegana hefur enginn séð þá þarna, sem þýðir að þeir ættu að koma og vera með okkur alla daga í þrjár vikur og sjá hvernig starfsemin okkar er.

Við skorum á bæjarstjórnina að koma og vera með okkur næstu þrjár vikur frá klukkan 8-16 og sjá hver þörf okkar er. Ef þið þykist vita betur skuluð þið halda áfram og endurnýja húsnæðið á Dalbrautinni eins og átti að gera áður en samfélagsmiðstöðin var ákveðin, án allra vitundar. Þið eruð ekki að vinna í Fjöliðjunni og vitið ekki þarfir okkar eða vilja.

Höfundur er starfsmaður Fjöliðjunnar. danni@1985.is

Höf.: Daníel Guðrúnarson Hrafnkelsson