Mannlíf Góður glaðningur er væntanlegur.
Mannlíf Góður glaðningur er væntanlegur.
Alls munu 24.900 manns fá eingreiðslu þegar Tryggingastofnun afgreiðir eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis síðastliðinn miðvikudag með 58 atkvæðum

Alls munu 24.900 manns fá eingreiðslu þegar Tryggingastofnun afgreiðir eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis síðastliðinn miðvikudag með 58 atkvæðum. Fimm þingmenn voru fjarverandi þegar málið var afgreitt. Allt kapp hefur verið lagt á að greiðslan berist svo fljótt sem auðið er til viðtakenda.

Eingreiðsluna fá þau sem eiga rétt á greiðslu örorku- eða endurhæfingarlífeyris á árinu 2022 og er hún 60.300 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greitt hluta úr ári er eingreiðslan í hlutfalli við greiðsluréttindi viðkomandi á árinu. Þá telst greiðslan ekki til tekna lífeyrisþega og leiðir ekki til skerðingar annars.