Botn
6 eggjahvítur
150 g sykur
150 g púðursykur
1 tsk. mataredik
1 tsk. vanilla extract (eða dropar)
salt á hnífsoddi
Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli. Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marengsinn er orðinn stífur. Teiknið hring á bökunarpappír, u.þ.b. 24 cm í þvermál, og smyrjið marengs á pappírinn. Bakið marengsinn við 100°C í 90 mínútur. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið marengsinn kólna í að minnsta kosti 3 klst. í ofninum. Best er að baka marengs degi áður en kakan er sett saman og borðuð.
Rjómakrem
með Daim
200 ml rjómi
2-3 msk flórsykur
1 tsk. vanilluextraxt eða dropar
100 g Daim-súkkulaði
fersk ber
dökkt súkkulaði
Þeytið rjóma, bætið flórsykri og vanilludropum út í á meðan þeytt er. Saxið Daim-súkkulaðið afar smátt og blandið saman við með sleikju. Setjið rjómablönduna yfir marengsbotninn og skreytið kökuna að vild með ferskum berjum. Saxið niður dökkt súkkulaði og sáldrið yfir kökuna í lokin. Frá evalaufeykjaran.is.