Strandstígur <strong>Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Wilhelm Eitzen, formaður vinabæjarfélagsins Cuxhaven-Hafnarfjörður, stödd saman við skiltið góða.</strong>
Strandstígur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Wilhelm Eitzen, formaður vinabæjarfélagsins Cuxhaven-Hafnarfjörður, stödd saman við skiltið góða.
Á dögunum var afhjúpað söguskilti um vinabæina Hafnarfjörð og Cuxhaven í Þýskalandi, en samstarf hefur verið milli þessara tveggja staða allt frá árinu 1988. Skiltinu var valinn staður við „Kugelbake“ á strandstígnum við höfnina í Hafnarfirði

Á dögunum var afhjúpað söguskilti um vinabæina Hafnarfjörð og Cuxhaven í Þýskalandi, en samstarf hefur verið milli þessara tveggja staða allt frá árinu 1988. Skiltinu var valinn staður við „Kugelbake“ á strandstígnum við höfnina í Hafnarfirði.

Í tilefni af 25 ára afmæli vinabæjarsamstarfsins, árið 2013, gaf þýska borgin Hafnarfjarðarbæ fjögurra metra háa timbureftirgerð af 30 metra háu siglingamerki sem reist var árið 1703 við ströndina nyrst í Neðra-Saxlandi þar sem áin Saxelfur (Elbe) rennur í Norðursjóinn. Kugelbake er borgarmerki Cuxhaven líkt og vitinn er merki Hafnarfjarðar. Tilvalið þótti að staðsetja söguskiltið við siglingamerkið til þess að útskýra betur tilurð þess. Um textagerð á skiltinu sá Björn Pétursson bæjarminjavörður og ljósmyndir tók Ólafur Már Svavarsson.

Sem dæmi um frekari afrakstur vinabæjarsamstarfsins má nefna að árið 1993 var vígt nýtt torg í miðborg Cuxhaven sem hlaut nafnið Hafnarfjördurplatz og á Óseyrarsvæðinu í Hafnarfirði fékk við sama tækifæri ný gata nafnið Cuxhavengata. Strax við stofnun vinabæjarsamstarfsins árið 1988 var auk þess tekin ákvörðun um að stofna til svokallaðs „Cuxhavenlundar“ við Hvaleyrarvatn og hefur sú hefð skapast að þegar sendinefndir frá Cuxhaven koma hingað í heimsóknir gróðursetji fulltrúar þeirra hér tré þegar færi gefst.

Auk þessa hefur samstarfið verið mikið og gefandi í æskulýðs- og íþróttamálum, mennta- og menningarmálum, á stjórnmálasviðinu og að ógleymdu viðskiptalífinu. Þá hefur Cuxhaven árlega fært Hafnfirðingum að gjöf jólatré sem lýst hefur upp skammdegið í bænum í áratugi. sbs@mbl.is