Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur hafið undirbúning að sameiningu átta héraðsdómstóla í einn héraðsdómstól. Forsenda sameiningarinnar að mati ráðherra er sú að héraðsdómstóllinn hafi áfram starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem núverandi dómstólar eru staðsettir. Efla þurfi og styrkja starfsstöðvarnar með nýjum verkefnum.
Fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðherra að starfshópur um sameiningu héraðsdómstólanna, sem skipaður var í mars, hafi nú skilað ráðherra skýrslu og megintillögur hópsins séu þær að héraðsdómstólarnir verði sameinaðir í einn Héraðsdóm með yfirstjórn í Reykjavík og átta starfsstöðvar á þeim stöðum sem héraðsdómstólarnir eru nú starfræktir. Störfum verði fjölgað á starfsstöðvum á landsbyggðinni og munu að lágmarki þrír starfa á hverri starfsstöð, þar af að minnsta kosti tveir héraðsdómarar eða einn héraðsdómari og einn dómarafulltrúi.
Lagt er til að dómstjóri og varadómstjóri Héraðsdóms verði skipaðir til fimm ára úr hópi héraðsdómara af stjórn dómstólasýslunnar. Það verði gert að undangengnu hæfnismati í stað kosningar á meðal dómara.
Starfshópurinn telur að þegar ráðist er í jafn miklar breytingar á uppbyggingu stofnana réttarkerfisins og hér er lagt til sé mikilvægt að gefinn verði rúmur aðlögunartími frá lögfestingu til gildistöku laganna eða allt að tvö ár. Er því lagt til að sameining héraðsdómstólanna taki gildi 1. ágúst 2024 en dómstjóri verði skipaður frá 1. mars 2024 til þess meðal annars að undirbúa sameininguna og starfsemi Héraðsdóms.