Ný skýrsla Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Guðmundur Valur Guðmundsson hjá Vegagerðinni, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar í byrjun árs.
Ný skýrsla Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Guðmundur Valur Guðmundsson hjá Vegagerðinni, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar í byrjun árs. — Ljósmynd/Stjórnarráðið
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Það er mat Reykjavíkurborgar að ekki sé raunhæft að flýta framkvæmdum við Sundabraut. Þær geti ekki hafist fyrr en árið 2026, eins og áætlanir geri ráð fyrir.

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Það er mat Reykjavíkurborgar að ekki sé raunhæft að flýta framkvæmdum við Sundabraut. Þær geti ekki hafist fyrr en árið 2026, eins og áætlanir geri ráð fyrir.

Þetta kemur fram í umsögn borgarinnar til Alþingis við þingsályktunartillögu Eyjólfs Ármannssonar og annarra þingmanna Flokks fólksins um að gerð Sundabrautar, með brú milli Kleppsvíkur og Gufuness, verði hraðað eftir fremsta megni og framkvæmdir hafnar hið fyrsta, eigi síðar en fyrir árslok 2023. Framkvæmdum verði lokið fyrir árslok 2027 eða fyrr.

Í umsögn borgarinnar, sem tekin var saman af samgöngustjóra og send Alþingi 2. desember sl., kemur fram að undirbúningur Sundabrautarverkefnisins hafi staðið yfir síðustu misseri í samstarfi Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar og mikilvægum áföngum sé þegar lokið.

Samtal við íbúa mikilvægt

Fram undan séu margvíslegir lögbundnir ferlar vegna verkefnisins, s.s. mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar, umhverfismat, frumhönnun vegna framkvæmda og breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur með tilheyrandi umhverfismati valkosta og gerð deiliskipulags. Meta þurfi almenn áhrif framkvæmdarinnar á samfélag, byggð, umhverfi og náttúru í stóru samhengi. Í öllum þessum liðum verkefnisins skipi samráð og samtal við íbúa veigamikinn sess.

„Sundabrautarverkefnið er kostnaðarsamt, umfangsmikið og flókið og mun hafa víðtæk áhrif sem samgönguframkvæmd. Því er mikilvægt að standa vel að öllum undirbúningi, tryggja að allir sem koma að verkefninu séu samstiga og sem mest sátt sé sköpuð um verkefnið. Reikna má með að umhverfis- og skipulagsferlar taki tvö ár hið minnsta. Í framhaldi af því þurfi að ráðast í verkhönnun verkefnisins,“ segir í umsögninni.

Umsögnin var tekin til umræðu á fundi borgarráðs, sem haldinn var 15. desember sl. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Hildur Björnsdóttir og Kjartan Magnússon, lögðu fram svohljóðandi bókun:

„Undirbúningur vegna lagningar Sundabrautar er orðin ein mesta sorgarsaga samgöngumála á Íslandi. Frá árinu 2010 hafa borgarstjórnarmeirihlutar undir forystu Samfylkingarinnar og annarra vinstriflokka gripið til margvíslegra ráða til að tefja framgang verkefnisins og leggja steina í götu þess. Smáhýsi hafa verið byggð á fyrirhuguðu vegsvæði brautarinnar, vildarvinum úthlutað fjölbýlishúsalóðum mun nær umræddu vegsvæði en ráðlegt er, sem og landinu undir heppilegustu tengingu brautarinnar við Sæbraut. Þannig má áfram telja og virðist það vera stefnumál vinstriflokkanna í borgarstjórn að koma í veg fyrir að Sundabraut verði að veruleika. Fyrirliggjandi umsögn ber það með sér að borgaryfirvöld hyggist halda áfram að tefja lagningu Sundabrautar með öllum ráðum. Ekki kemur á óvart að fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar styðji áframhaldandi tafir vegna Sundabrautarverkefnisins enda hafa þær verið hluti af samgöngustefnu þessara flokka um árabil. Það kæmi hins vegar á óvart ef áðurnefndum flokkum tækist að fá fulltrúa Framsóknarflokksins með sér í þá vegferð að halda tafaleikjunum áfram og spilla þannig enn frekar fyrir þessu þarfa verkefni.“

Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar; Heiða Björg Hilmisdóttir, Einar Þorsteinsson, Alexandra Briem og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, lögðu fram svohljóðandi gagnbókun:

Bókun kemur á óvart

„Bókun Sjálfstæðisflokks varðandi Sundabraut kemur á óvart. Á vettvangi borgarinnar er unnið eins hratt að þessu verkefni og unnt er. Það er skýr pólitískur vilji fyrir verkefninu og kemur fram í meirihlutasáttmála Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar að hafist verði handa við gerð Sundabrautar, að ráðist verði í gerð umhverfismats, hafist handa við víðtækt samráð og nauðsynlegar skipulagsbreytingar vegna hennar undirbúnar. Að auki kemur fram að leggja þurfi áherslu á að Sundabraut nýtist öllum ferðamátum, að skoða þurfi loftslagsáhrif framkvæmdarinnar og áhrif hennar á nærliggjandi byggð og rýna mögulegar mótvægisaðgerðir. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs tilgreinir réttilega þau atriði sem þarf að huga að við undirbúning Sundabrautar og ekki er hægt að sleppa. Eins liggur fyrir að Vegagerðin þarf að ljúka lýsingu verkefnisins af sinni hálfu áður en borgin getur hafist handa við þær hliðar verkefnisins sem snúa að henni. Það er fásinna að borgarstjórn vinni gegn eigin samþykktri stefnu og þeim mun fjarstæðukenndara að fagfólk á umhverfis- og skipulagssviði vinni gegn framgangi þeirrar stefnu.“

Höf.: Sigtryggur Sigtryggsson