Lokun Björgunarstarfi lauk í gær.
Lokun Björgunarstarfi lauk í gær. — Morgunblaðið/Eggert
Hátt í þúsund ferðalangar voru veðurtepptir á Keflavíkurflugvelli á mánudag, en Reykjanesbraut var opnuð í gær eftir tveggja daga lokun. Bæði innlendu flugfélögin gripu til þess ráðs að fljúga með áhafnir til Keflavíkurflugvallar frá Reykjavík

Hátt í þúsund ferðalangar voru veðurtepptir á Keflavíkurflugvelli á mánudag, en Reykjanesbraut var opnuð í gær eftir tveggja daga lokun. Bæði innlendu flugfélögin gripu til þess ráðs að fljúga með áhafnir til Keflavíkurflugvallar frá Reykjavík. Icelandair flutti strandaglópa í Keflavík til Reykjavíkur, á meðan Reykjanesbraut var lokuð, og að auki flutti flugfélagið tvö tonn af mat í Leifsstöð, en matur var þar af skornum skammti. Snjókoma og illviðri síðustu daga hafa leitt til þess að Reykjavíkurborg hyggst endurskoða alla vetrarþjónustu og skoðar að bæta bæði ruðning á vegum og á stígum. » 2