Margrét Anna segir að lausn Justikal sé í sífelldri þróun og verði í raun aldrei að fullu tilbúin.
Margrét Anna segir að lausn Justikal sé í sífelldri þróun og verði í raun aldrei að fullu tilbúin. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hugbúnaðarfyrirtækið Justikal hefur sig nú til flugs eftir að hafa fengið 400 m.kr. fjárfestingu frá Eyri Vexti fyrr á árinu. Eyrir Vöxtur er fjárfestingarsjóður sem einbeitir sé að samfélagslega ábyrgum verkefnum. Áður hafði Justikal fengið 50 m.kr. vaxtarstyrk frá Tækniþróunarsjóði, en fjögur ár eru síðan félagið hóf þróun hugbúnaðarlausnar sem gerir lögmönnum og öðrum aðilum kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla.

Hugbúnaðarfyrirtækið Justikal hefur sig nú til flugs eftir að hafa fengið 400 m.kr. fjárfestingu frá Eyri Vexti fyrr á árinu. Eyrir Vöxtur er fjárfestingarsjóður sem einbeitir sé að samfélagslega ábyrgum verkefnum. Áður hafði Justikal fengið 50 m.kr. vaxtarstyrk frá Tækniþróunarsjóði, en fjögur ár eru síðan félagið hóf þróun hugbúnaðarlausnar sem gerir lögmönnum og öðrum aðilum kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla.

Lausn Justikal er þannig uppbyggð að málsaðilar fá tilkynningu þegar eitthvað nýtt gerist. Þeir eru því alltaf upplýstir um framvindu mála.

Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi félagsins, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að spennandi tímar séu fram undan. Fjölga á starfsmönnum og stórefla þróun en byggja á upp alþjóðlegt sölu- og markaðsteymi til að sækja á erlenda markaði. Engar sambærilegar lausnir eru í boði erlendis að sögn Margrétar Önnu. Einnig er unnið að því að auka notkun kerfisins á innanlandsmarkaði.

„Lausnin kemur til með að skila ótrúlega miklum ábata fyrir samfélagið með betri þjónustu. Lausnin getur aukið skilvirkni í málsmeðferð og minnkað allt umstang við að fara með mál fyrir dómstóla,“ segir Margrét Anna sem sjálf starfaði við lögmennsku um tíu ára skeið.

Lagst í útreikninga

Hún segir að kerfið geti sparað íslensku samfélagi u.þ.b. 3,3 milljarða króna á ári. Spurð hvernig sú tala sé fengin segir Margrét Anna að lagst hafi verið í útreikninga þegar sótt var um styrk frá Tækniþróunarsjóði á sínum tíma. Eitt af því sem sjóðurinn hafi farið fram á í umsóknarferlinu voru rök fyrir sparnaðinum.

„Það má flokka innlendu verðmætasköpunina í fimm flokka, í fyrsta lagi aukna afkastagetu dómstóla, í öðru lagi jákvæð umhverfisleg áhrif með minni pappírssóun og óþarfa bílferðum, í þriðja lagi sparnað í tíma lögmanna við framlagningu skjala, í fjórða lagi sparnað við varðveislu dómsgagna og í fimmta lagi önnur verðmætaaukning fyrir samfélagið eins og skilvirkara og öruggara réttarkerfi o.fl. Oft er til dæmis verið að deila um kröfur sem bera dráttarvexti og þannig er auðvelt að sjá fjárhagslegt hagræði af styttri umsýslutíma. Þessi 3,3 ma. kr. tala er ekki úr lausu lofti gripin. Ísland getur með réttu hugarfari átt eitt fullkomnasta réttarkerfi í heimi og verið fyrirmynd annarra þjóða.“

Lykilatriði í framgangi lausnarinnar var innleiðing nýrrar Evrópureglugerðar, eIDAS, í íslensk lög en með henni var kominn lagarammi um réttaráhrifin við tæknina sem Justikal notar.

Margrét Anna segir að áhrif lausnarinnar séu ekki eingöngu fjárhagslegs eðlis.

„Það er sagt að meðalmaðurinn lendi í 1-2 dómsmálum yfir ævina. Það er þungbært fyrir aðila að reka mál fyrir dómstólum. Ef við getum hraðað málsmeðferðartímanum um 20-30%, lækkað málskostnaðinn og aukið gagnsæið með lausn Justikal þá er það afskaplega jákvætt og gefur fólki hugarró með aukinni yfirsýn.“

Þá segir Margrét Anna að lausnin geti gert dómstóla aðgengilegri fyrir tekjulægri aðila.

Um starfsmannamálin segir Margrét Anna að á dögunum hafi Sölvi Rúnar Pétursson verið ráðinn markaðsstjóri og einnig hefur verið ráðinn gæða- og öryggisstjóri sem mun leiða fyrirtækið í gegnum ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27701 gæðavottanir. Ennfremur hefur Justikal tólf manna forritunarteymi.

„Við höfum verið ákaflega heppin með framúrskarandi hæfileikaríkt fólk. Vegferðin okkar og gæði lausnarinnar er frábæru teymi að þakka,“ segir hún.

Spurð um þróun lausnarinnar,
nýjungar og viðbætur segir Margrét Anna að Justikal sé búið að gera þróunaráætlun fyrir næstu þrjú ár.

„Við erum stöðugt að þróa og bæta lausnina. Við gáfum út uppfærslu síðast í nóvember sl. með fjölmörgum nýjum eiginleikum. Það sýnir glöggt hraðann í þróuninni. Þetta er mjólk sem súrnar ekki. Þjónustan verður bara betri og betri. Varan verður í raun aldrei að fullu tilbúin.”

Margrét Anna ítrekar mikilvægi þess að vera fyrst á markaðinn með dómstólalausn. Vitað sé að aðrir muni fylgja í kjölfarið.

„Því skiptir öllu að halda lausninni framúrskarandi og veita alltaf fyrsta flokks þjónustu. Við hlustum á rödd notenda og tökum mið af þeirra ábendingum.“

Hefðir eru áskorun

Lögfræðiheimurinn hefur oft verið talinn íhaldssamur.

„Helsta áskorun okkar eru hefðir. Það er hefð fyrir því á Íslandi að öll málsgögn í dómsmálum séu á pappír. Það var því áskorun fyrir okkur þegar við vorum að byrja að gera þetta allt stafrænt. Við þurftum samþykki íslenskra stjórnvalda fyrir því að dómstólar mættu taka við rafrænum gögnum í gegnum Justikal. Það var ekki auðvelt fyrir lítið nýsköpunarfyrirtæki, en ég er þakklát fyrir framsýni dómsmálaráðuneytisins og Dómstólasýslunnar að hleypa okkur að markaðnum. Þau sáu þann ábata sem þetta skilaði notendum og starfsfólki dómstóla.“

Margrét Anna segir að vel gangi að fjölga notendum á Íslandi. Hún segir að lögmenn sjái þann ábata sem fylgi lausninni og þeim finnist hún nútímaleg. „Lögmenn sjá að þetta er leið til að veita sínum viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Öryggi er líka mjög mikilvægt í þessum geira. Þegar notendur sjá að það er fyrsta flokks tryggir það okkur enn frekari framgang á markaðinum.“
Eitt af því sem styður við notkun lausnarinnar til framtíðar er mikil aukning í notkun rafrænna skilríkja og rafrænna undirskrifta. Það er ekki hægt að prenta út rafrænt undirrituð skjöl eins og Margrét Anna útskýrir, en kerfi Justikal sannreynir rafrænt undirrituð skjöl og veitir áreiðanlegar niðurstöður um hvernig rafræna undirritunin er útfærð. Þetta skiptir máli varðandi réttaráhrif undirritunarinnar að sögn Margrétar. „Á sama tíma og sífellt fleiri fyrirtæki nota rafrænar undirskriftir í samningum liggur fyrir að slík gögn er ekki hægt að leggja fram á pappír. Dómstólar verða að geta tekið á móti rafrænt undirrituðum skjölum, sannreynt þau og varðveitt. Justikal gerir þeim það kleift.“

Markaðurinn borgar

Um viðskiptamódelið segir Margrét Anna að markaðurinn borgi fyrir lausnina. Sá sem stofnar mál í Justikal greiðir fyrir notkun hennar meðan á málarekstri stendur. Dómstólar, skjólstæðingar og aðrir nota lausnina frítt.

Einn af nýju eiginleikunum í lausninni er möguleikinn á að færa persónulegar athugasemdir og yfirstrikanir inn í skjöl. Það gerir vinnuna skilvirkari og þægilegri fyrir alla að sögn Margrétar Önnu og notendaupplifunina þægilegri og betri.
Lausnin var fyrst prófuð í Landsrétti. „Forsenda fyrir samþykki lausnarinnar fyrir dómstóla var að hún væri prófuð í raunaðstæðum og sannað væri að hún virkaði eins og henni var lýst. Það gekk framar vonum og við fengum meðmælabréf frá öllum þátttakendum.“

Samkeppnisgreiningar

Um komandi útrás segir Margrét Anna að Justikal sé búið að gera samkeppnisgreiningar á erlendum mörkuðum. „Við fórum ítarlega í gegnum það áður en Eyrir Vöxtur kom að félaginu. Evrópulöggjöfin á við um alla dómstóla í álfunni og það er skylda þeirra allra að taka við rafrænt undirrituðum gögnum, sannreyna þau og varðveita.“

Margrét Anna segir að viðskiptamódelið falli Evrópubúum í geð. „Það að fá lausnina án nokkurs kostnaðar fyrir ríkið er mjög jákvætt í þeirra huga. Við munum á næstu vikum hafa samband við alla helstu markaði í Evrópu. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga.“

Um fjárfestingu Eyris Vaxtar segist Margrét Anna vera gríðarlega ánægð með samstarfið, enda deila fyrirtækin sömu sjálfbærnimarkmiðum og fleiri gildum. Bæði fyrirtækin vilji bæta samfélagið. Margrét Anna vonast til að lausnin muni í fyllingu tímans skapa miklar tekjur fyrir íslenskt samfélag. „Það er lykilatriði fyrir okkur að fara á erlenda markaði. Það mun vonandi skila sér í miklum skatttekjum fyrir Ísland og fjölgun starfa hér á landi,“ segir Margrét að lokum.