Kópavogur Breiðablik og HK mætast í fyrstu umferð um páskana.
Kópavogur Breiðablik og HK mætast í fyrstu umferð um páskana. — Morgunblaðið/Eggert
Íslandsmeistarar Breiðabliks hefja titilvörnina í Bestu deild karla í fótbolta næsta vor með heimaleik gegn nágrönnum sínum í HK. Deildin byrjar átta dögum fyrr en nokkru sinni áður, eða mánudaginn 10

Íslandsmeistarar Breiðabliks hefja titilvörnina í Bestu deild karla í fótbolta næsta vor með heimaleik gegn nágrönnum sínum í HK. Deildin byrjar átta dögum fyrr en nokkru sinni áður, eða mánudaginn 10. apríl. Þá mætast einnig KA – KR, Valur – ÍBV, Fylkir – Keflavík, Stjarnan – Víkingur og Fram – FH. Mótinu lýkur þremur vikum fyrr en í ár en viðbótarumferðirnar fimm í lokin verða leiknar frá 17. september til 7. október.