Hurðaskellir og Stekkjarstaur voru á ferðinni á Reykjavíkurflugvelli í gær og gerðu heiðarlega tilraun til að húkka sér far með Bombardier-vél Icelandair, sem var í þann mund að leggja í hann til Akureyrar

Hurðaskellir og Stekkjarstaur voru á ferðinni á Reykjavíkurflugvelli í gær og gerðu heiðarlega tilraun til að húkka sér far með Bombardier-vél Icelandair, sem var í þann mund að leggja í hann til Akureyrar. Það gekk þó ekki, þrátt fyrir að Stekkjarstaur tæki upp gítarinn og þeir bræður syngju og spiluðu fyrir áhöfn vélarinnar. Þeir sögðust ætla að gera aðra tilraun í dag, enda í nógu að snúast hjá jólasveinunum að koma öllum gjöfum til skila áður en jólin ganga í garð á heimilum landsmanna.