Borhola Hægt að nýta orku betur.
Borhola Hægt að nýta orku betur. — Morgunblaðið/Kristinn
Fyrirtækið Varmaorka hefur komið upp tveimur litlum virkjunum sem nýta umframvarma úr borholum hitaveitna til framleiðslu á raforku og undirbúið stærri virkjun á Efri-Reykjum í Bláskógabyggð. Alþjóðlega fyrirtækið Baseload Power hefur tekið…

Fyrirtækið Varmaorka hefur komið upp tveimur litlum virkjunum sem nýta umframvarma úr borholum hitaveitna til framleiðslu á raforku og undirbúið stærri virkjun á Efri-Reykjum í Bláskógabyggð. Alþjóðlega fyrirtækið Baseload Power hefur tekið starfsemina yfir og fylgir eftir verkefnum Varmaorku og kannar ný tækifæri hér á landi og erlendis. Baseload Power er eitt þeirra fyrirtækja, líklega það eina evrópska, sem Breakthrough Energy, fyrirtæki Bills Gates stofnanda Microsoft, hefur lagt fjármagn í til að reyna að minnka umhverfisvanda heimsins. » 6