Þrátt fyrir að mikil vandræði hlytust af fannfergi í Reykjavík, þar sem tiltæk voru jafnmörg snjóðruðningstæki og í margfalt fámennari nágrannasveitarfélögum, var gatnamoksturinn við heimili borgarstjóra til háborinnar fyrirmyndar.
Þrátt fyrir að mikil vandræði hlytust af fannfergi í Reykjavík, þar sem tiltæk voru jafnmörg snjóðruðningstæki og í margfalt fámennari nágrannasveitarfélögum, var gatnamoksturinn við heimili borgarstjóra til háborinnar fyrirmyndar. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Liðin vika bar vitaskuld mikið mark af jólaundirbúningi, en það dró ekki úr jólastemmningunni þegar Vetur konungur gekk í garð með látum og snjó kyngdi niður eftir annars tíðindalítið og milt haust og vetrarbyrjun

17.12-23.12.

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Liðin vika bar vitaskuld mikið mark af jólaundirbúningi, en það dró ekki úr jólastemmningunni þegar Vetur konungur gekk í garð með látum og snjó kyngdi niður eftir annars tíðindalítið og milt haust og vetrarbyrjun.

Þrátt fyrir viðvaranir Veðurstofu virtist fannfergið koma bæði borgarstjórn Reykjavíkur og Vegagerðinni í opna skjöldu. Allt sat pikkfast í Reykjavík og Reykjanesbraut var lokað með þeirri afleiðingu að fjöldi ferðamanna kúldraðist í Leifsstöð við illan kost.

Einar Þorsteinsson, staðgengill borgarstjóra (Dagur B. Eggertsson var að sóla sig í Suður-Afríku), sagði það óásættanlegt að Reykjavíkurborg hafi einungis náð að koma níu snjómoksturstækjum á götur borgarinnar um síðustu helgi.

Stalla hans, Alexandra Briem, borgarfulltrúa Pírata og formaður umhverfis- og skipulagsráðs, sagði hins vegar að snjómoksturinn hefði gengið vel, enda væri stýrihópur að endurskoða þjónustuhandbók vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar.

Svissnesk orkufyrirtæki vilja reisa metangasverksmiðju við Reykjanesvirkjun, þar sem fyrst yrði rafgreint vetni og það síðan notað ásamt koldíoxíði frá jarðvarmavirkjun HS orku til að búa til metangas, sem svo yrði flutt til Sviss.

Birgir Þórarinsson alþingismaður fór á vegum Evrópuráðsins og hitti flóttamannaráðherra talíbana í Afganistan þar sem hann ræddi flóttamannavandann, stöðu kvenna í lamndinu og fleira.

Frumvarp um breytta háttu leigubílaaksturs var samþykkt frá Alþingi. Þau taka gildi 1. apríl.

Alþingi afgreiddi fjárlög með útgjöld á 1.400. milljarð króna. Við svo búið héldu þingmenn í jólafrí.

Héraðsdómur hafnaði endurtekinni kröfu um gæsluvarðhald tveggja manna í hryðjuverkamálinu svonefnda.

Áfram var illfært og Reykjanesbraut lokuð, svo aflýsa þurfti millilandaflugi og mörgum flugferðum seinkað. 300 ferðamenn voru strandaglópar í Bláa lóninu og fjöldahjálparmiðstöðvar opnaðar á Suðurlandi og Suðurnesjum.

3,8 stiga skjálfti varð í Kötlu, sem verið hefur óróleg að undanförnu.

Leigubílstjórar voru margir óhressir með ný lög um leigubílaakstur og efndu til mótmælaverkfalls. Þátttakan var hins vegar misjöfn og fór það út um þúfur.

Ríkisstjórn og Samtök íslenskra sveitarfélaga undirrituðu samning um breytta fjármögnun þjónustu við fatlað fólk.

Reykjavíkurborg hækkaði leikskólagjöld í annað sinn á aðeins þremur mánuðum. Hækkunin nú nam 4,9% en var 4,5% í september.

Ljósleiðarinn, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur (OR), lét undan Sýn og keypti grunnnetið af henni fyrir 3 milljarða króna, frekar en að eiga á hættu að missa stærsta viðskiptavininn annað.

Hvorki Ljósleiðarinn né OR vildu nokkuð láta uppi um samninginn og borgarstjórnarmeirihlutinn bannaði að um hann yrði rætt í borgarstjórn. Þarf Ljósleiðarinn þó að slá 4-5 milljarða lán á hæstu vöxtum.

Brynhildur Davíðsdóttir, stjórnarformaður OR hyggst láta af störfum, þó hún segði að þessi leyndarhyggja og pukur væru fullkomlega eðlileg og að viðskiptin kæmu eigendunum ekkert við.

Starfsgreinasambandið (SGS) samþykkti kjarasamning við Samtök atvinnulífsins (SA) með afgerandi hætti í öllum aðildarfélögum. Ekki þó Eflingar sem reynir að semja upp á eigin spýtur. Nú eða að fá fram verkfall, sem virðist alls ekki vera forystu Eflingar á móti skapi.

Ýmis opinber gjöld eiga að hækka um áramótin, þar á meðal á áfengi og eldsneyti og sorphirðugjaldi.

63% landsmanna sáu úrslitaleik í heimsmeistaramótinu í fótbolta þar sem Argentínumenn báru sigurorð af Frökkum. 37% landsmanna virtust hins vegar halda fast við að sniðganga Katara.

Reykjanesbraut var loks opnuð aftur á þriðjudag, en flugfélögin höfðu gripið til þess ráðs að fljúga milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar með strandaglópa, vistir og áhafnir. Ekkert var að veðri eða færð, svo millilandaflugvöllurinn hefði vel getað verið opinn ef Reykjanesbraut hefði ekki verið lokuð.

Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað mikið í landinu og eru þeir nú um 17,7% íbúa landsins. Langflestir eða um 36% eru frá Póllandi, en næst koma Litháen, Rúmenía, Lettland og Úkraína. Fjölgun Úkraínumanna á árinu nemur 862%.

Mikil breyting verður á afgreiðslu olíufélaganna í borginni á næstu árum, en þau fengu þar byggingarrétt fyrir a.m.k. 700-800 íbúðir og um 8 milljarða króna á silfurfati frá fjárvana borg.

Nær fjögur þúsund manns mótmæltu þeim fyrirætlunum Reykjavíkurborgar að loka Vin, dagsetri fyrir fólk með geðraskanir, aðeins ári eftir að borgin tók við rekstrinum.

Vetrarveðrin höfðu mikil áhrif á þá sem bágast eiga í landinu, einkum þá í Reykjavík. Það átti ekki síst við heimilislaust fólk, en ásókn í kaffistofu Samhjálpar er mjög mikil. Um 500 manns koma í mat hjá góðgerðarsamtökum á borð við hana og Hjálpræðisherinn dag hvern.

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur samið við Hríseyjarbúðina um afhendingu á áfengi, sem keypt er í vefverslun ÁTVR.

Ríkið hefur gengið frá kaupum á nýjum hlutum í Betri samgöngum með afhendingu mikils lands við Keldur og Keldnaholt undir sérsniðið hverfi fyrir Borgarlínuna.

Reykjavíkurborg telur óraunhæft að flýta gerð Sundabrautar. Meirihlutinn neitar að hann leitist við að tefja málið.

Icelandair segir að lokun Reykjanesbrautar hafi raskað ferðum um 24 þúsunda manns á vegum félagsins. Beint tjón fyrir flugfélög sé mikið og óbeint kunni orðspor íslenskrar ferðaþjónustu að hafa beðið hnekki.

Þrátt fyrir alla verðbólgu hefur matvöruverð hækkað minna hér en í löndum Evrópusambandsins (ESB). Hér á landi er það aðeins ket, sem hefur hækkað meira en ytra.

Hagstofan kynnti mannfjöldaspá og telur íbúa landsins verða 400 þúsund árið 2027 samkvæmt miðspá. Er Hagstofan þó alræmd fyrir íhaldssamar spár um mannfjölda. Fjölgunin undanfarin ár hefur verið í samræmi við háspá hennar.

Samkvæmt stofnmælingum Hagstofu eru fiskistofnar við landið að styrkjast.

Löggilding 16 iðngreina var felld niður eða þær sameinaðar öðrum, skyldum greinum. Þar á meðal er feldskurður, glerslípun, hattasaumur, leturgröftur og fleira.

Félagsmenn VR, Landssamband verslunarmanna og samflots iðn- og tæknifólks, samþykkti með afgerandi hætti samninga við SA. Það er nokkuð áfall fyrir Ragnar Þór Ingólfsson formann VR, sem ekki mælti með samþykktinni.

Samtök atvimnnulífsins (SA) höfnuðu kjaratilboði Eflingar, sem var mjög á aðra lund en aðrir samningar. Þar var gert ráð fyrir tvöfalt meiru en samið var um við SGS. Efling vildi 57.500 kr. lágmarkshækkun upp í 66 þúsund.

Snjómokstur í Reykjavík, eða öllu heldur skortur á honum, var áfram í fréttum, en á daginn kom að borgin lætur vera að ryðja götur við einkalóðir.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra samdi við Erlu Bolladóttur um að hún fengi 32 milljónir króna í miskabætur vegna gæsluvarðhalds hennar í Geirfinnsmálinu.