Völd Leikkonan Jessica Chastain greinir frá því í samtali við tímaritið Marie Claire að hún hafi látið breyta atriði í myndaflokknum George & Tammy sem fór fyrir brjóstið á henni. Flokkurinn fjallar um hjónin og kántrístjörnurnar George Jones og Tammy Wynette og í téðu atriði var, að mati Chastain, gert lítið úr Wynette, sem hún leikur. Michael Shannon, sem fer með hlutverk Jones, mun líka hafa hagrætt orðalagi í þáttunum, sem honum þótti of klúrt. Segið svo að leikarar séu bara viljalaus verkfæri! Þess ber að vísu að geta að Chastain er líka einn framleiðenda George & Tammy.