Bergþór Pálsson, söngvari og skólastjóri, bíður spenntur um hver jól eftir kveðju frá leynivini, sem byrjaði að senda honum bréf og jafnvel jólagjöf fyrir tæpum tveimur áratugum. Í bréfunum er lof um söngvarann og litríkar frásagnir af fjölskyldu sendanda
Bergþór Pálsson, söngvari og skólastjóri, bíður spenntur um hver jól eftir kveðju frá leynivini, sem byrjaði að senda honum bréf og jafnvel jólagjöf fyrir tæpum tveimur áratugum.
Í bréfunum er lof um söngvarann og litríkar frásagnir af fjölskyldu sendanda. Leynijólavinurinn hefur ekki gefið sig fram og nöfnin sem koma fram virðast tilbúningur. „Þetta vekur alltaf mikla kátínu,“ segir Bergþór í viðtali í Sunnudagsblaðinu.