Gera má ráð fyrir miklum töfum við vegabréfaskoðun á breskum flugvöllum næstu daga, vegna verkfalla tollvarða sem annast landamæraeftirlit. Áforma tollverðir að leggja niður vinnu á hverjum degi fram til áramóta, að 27

Gera má ráð fyrir miklum töfum við vegabréfaskoðun á breskum flugvöllum næstu daga, vegna verkfalla tollvarða sem annast landamæraeftirlit.

Áforma tollverðir að leggja niður vinnu á hverjum degi fram til áramóta, að 27. desember undanskildum. Aðgerðirnar eru hluti af verkfallahrinu opinberra starfsmanna í Bretlandi sem krefjast betri kjara. Í vikunni hafa hjúkrunarfræðingar og sjúkraflutningamenn lagt tímabundið niður vinnu og í gær boðuðu hjúkrunarfræðingar vinnustöðvun 18. og 19. janúar, verði ekki samið við þá áður.