Dalslaug Nýjasti sundstaður Reykjavíkur og einn sá besti.
Dalslaug Nýjasti sundstaður Reykjavíkur og einn sá besti. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Enginn má fara í jólaköttinn og jafn mikilvægt er að fólk fari hreint og strokið inn í hátíðina. Því er tilvalið að skreppa í sund áður, ef allt er til reiðu fyrir gleði kvöldsins. Allar sundlaugar í Reykjavík eru opnar í dag, aðfangadag, fram til klukkan 13

Enginn má fara í jólaköttinn og jafn mikilvægt er að fólk fari hreint og strokið inn í hátíðina. Því er tilvalið að skreppa í sund áður, ef allt er til reiðu fyrir gleði kvöldsins. Allar sundlaugar í Reykjavík eru opnar í dag, aðfangadag, fram til klukkan 13. Þá hafa sundlaugar borgarinnar líka komið sterkar inn á öðrum degi jóla, en þá eru þær opnar frá 12-18. Sundlaugar í öðrum bæjarfélögum eru víðast hvar opnar á svipuðum tíma og í höfuðborginni, en þjónustutíma má sjá á vefsíðum viðkomandi sveitarfélaga.