Flugvélarfarmur af hlýjum vetrarfatnaði er kominn í notkun úkraínskra hermanna á vígstöðvunum. Kanadísk herflugvél flutti varninginn frá Íslandi hinn 12. desember sl. og í vikunni fékk utanríkisráðuneytið sent myndband frá úkraínska hernum sem sýnir þegar farmurinn er tekinn í notkun á vígstöðvunum, í miklum vetrarkulda.
Um var að ræða annars vegar afrakstur íslensks hannyrðafólks sem hefur prjónað margvíslegar ullarvörur og hins vegar innkaup utanríkisráðuneytisins á vörum hérlendis.
Ísland hefur þar að auki lagt ríflega 1,6 milljónir evra í sjóð á vegum Atlantshafsbandalagsins sem kaupir m.a. vetrarfatnað.
Hermennirnir sem koma fram í myndbandinu senda þakkir til Íslands og segja að klæðnaðurinn muni koma að góðum notum á vígstöðvunum.