Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju, leikur vinsæl orgelverk á tónleikum í Hallgrímskirkju á mánudag, annan í jólum, kl. 17. Á efnisskránni eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Claude Balbastre, César Franck og Charles-Marie Widor sem tengjast fæðingu frelsarans

Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju, leikur vinsæl orgelverk á tónleikum í Hallgrímskirkju á mánudag, annan í jólum, kl. 17. Á efnisskránni eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Claude Balbastre, César Franck og Charles-Marie Widor sem tengjast fæðingu frelsarans. Jafnframt verður frumflutt eftir Hrafnkel Orra Egilsson Pastorale yfir jólasálminn Nóttin var sú ágæt ein. Miðar fást á tix.is og við innganginn.