Hin 18 ára söngkona Emilía Hugrún Lárusdóttir hefur gefið út sitt fyrsta jólalag en hún sagði frá laginu í kynningu á K100 á dögunum. Lagið heitir Jólaengill en textann samdi Emilía fyrir ömmu sína og afa sem nú eru dáin
Hin 18 ára söngkona Emilía Hugrún Lárusdóttir hefur gefið út sitt fyrsta jólalag en hún sagði frá laginu í kynningu á K100 á dögunum. Lagið heitir Jólaengill en textann samdi Emilía fyrir ömmu sína og afa sem nú eru dáin.
„Ég samdi þetta lag í haust en hugmyndin kviknaði þegar ég var stödd í sumarbústað. Hann var eitthvað svo jólalegur að ég datt aðeins í gírinn í september,“ sagði Emilía.
Nánar á K100.is. Lagið má finna á öllum streymisveitum.