Danía Árnadóttir fæddist 27. febrúar 1958. Hún lést 4. desember 2022.

Útför hennar var gerð 20. desember 2022.

Elsku Danía systir mín er búin að kveðja okkur.

Hún kenndi mér svo margt þegar við vorum yngri og vildi alltaf allt fyrir mig gera. Hún fyllti mig sjálfstrausti og sagði alltaf Dabby mín, þú gerir bara svona og svo svona og þá kemur þetta.

Alltaf tilbúin að lána mér föt, mála mig eða krulla á mér hárið.

Þegar hún vann í Karnabæ, helstu tískuversluninni, þá naut ég góðs af. Eftir að hún flutti að heiman og fór að búa var ég eins og heimalningur hjá henni. Hún átti frumburðinn hann Árna Heiðar og var ég mikið að passa fyrir hana meðan hún vann.

Hún var alltaf bakandi og prófaði endalaust nýjar uppskriftir. Ég var alltaf velkomin til hennar og hún hjálpaði mér mikið þegar ég fór að búa sjálf og eignaðist mitt fyrsta barn en við vorum óléttar saman og það voru ófá símtölin milli okkar systranna þar sem við bárum saman óléttuna.

Danía gerðist dagmamma og sinnti því starfi mjög vel enda mikil barnagæla. Hún var eftirsótt dagmamma og bjó í Laugarneshverfinu en hún passaði Karen, frumburðinn minn, á meðan ég vann. Það var alltaf gott og hittast heima hjá henni í kaffibolla og spjalli enda leit ég mikið upp til hennar og mun sakna hennar mikið.

Fjölskyldu hennar, Árna, Lillý, Hirti, Róbert, Bjarka og barnabörnum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur.

Gleðin og sorgin

eru samrýmdar systur

og án hvor annarrar

einskis megnugar.

(Svava Strandberg)

Ég mun sakna þín mikið og held í góðar minningar um mína fallegu systur.

Elska þig.

Dabby systir.

Danfríður Kristín Árnadóttir.