Svartur á leik
Svartur á leik
Staðan kom upp í opnum flokki heimsmeistaramótsins í atskák sem lýkur í dag í Almaty í Kasakstan. Magnus Carlsen (2.834) hafði svart gegn Evgeny Tomashevsky (2.628)

Staðan kom upp í opnum flokki heimsmeistaramótsins í atskák sem lýkur í dag í Almaty í Kasakstan. Magnus Carlsen (2.834) hafði svart gegn Evgeny Tomashevsky (2.628). 47. ... g3+! 48. fxg3 aðrir leikir hefðu einnig tapast. 48. ... f3! 49. g4 Hxg2+ 50. Kh3 f2 og hvítur gafst upp. Bein útsending frá lokadegi mótsins hefst kl. 9.00 í dag en hægt er að velja marga skákþjóna sem sýna frá mótinu, t.d. chess.com, chess24.com, streymissíðu Hikaru Nakamura og heimasíðu mótsins, https://worldrapidandblitz2022.fide.com/. Á morgun hefst heimsmeistaramótið í hraðskák á sama stað en því lýkur nk. föstudag, sjá nánari upplýsingar á skak.is. Íslandsmót kvenna í hraðskák fer fram í dag og annað kvöld fer jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur fram. Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. janúar nk., sjá nánar á taflfelag.is.