Norður
♠ D2
♥ K65
♦ KD106
♣ KDG9
Vestur
♠ 87
♥ D1043
♦ ÁG52
♣ 1075
Austur
♠ Á
♥ ÁG87
♦ 9873
♣ 8642
Suður
♠ KG1096543
♥ 92
♦ 4
♣ Á3
Suður spilar 4♠.
„Hérna piltar. Suður opnar á fjórum spöðum og allir passa.“ Það lá óvenju vel á Geltinum – maginn mettur og sálin sæl eftir veislur helgarinnar. „Þið sitjið í austur og makker kemur út með hjartafjarka. Reglan er þriðja-fimmta. Sagnhafi lætur lítið úr borði og þið eigið slaginn á gosann.“
Fuglarnir áttuðu sig strax á kjarna málsins: „Eftir útspilinu að dæma eigum við tvo slagi á hjarta,“ sagði Magnús. „Og einn á spaðaás,“ bætti Óskar skarplega við. „Sem þýðir að vestur þarf helst að eiga ás í láglit ef spilið á að fara niður,“ sögðu báðir einni röddu. „Við tökum á spaðaás, svo hjartaás og vestur lætur drottninguna undir til að kalla í tígli. Og því kalli hlýðum við umyrðalaust.“
„Þið eruð aldeilis í stuði. Hvað fenguð þið að borða á aðfangadag?“
„Hamborgarhrygg.“