— Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Borgarnes Kettir geta verið skemmtilegar skepnur og tekið upp á ýmsu. Kötturinn Lúna á heima í Egilsgötunni í Borgarnesi. Stundum kemur hún í heimsókn og fer þá gjarnan upp í snúrustaur til að vera nær fuglunum sem hún hefur svo mikinn áhuga á

Borgarnes Kettir geta verið skemmtilegar skepnur og tekið upp á ýmsu. Kötturinn Lúna á heima í Egilsgötunni í Borgarnesi. Stundum kemur hún í heimsókn og fer þá gjarnan upp í snúrustaur til að vera nær fuglunum sem hún hefur svo mikinn áhuga á. En þegar ekkert er að gerast og henni leiðist þá geispar hún en breytist um leið í ógnvænlegan jólakött sem vissara er að vara sig á.