Júní Krýsuvíkurkirkja hefur verið endurreist eftir brunann árið 2010. Var hún vígð við hátíðlega athöfn á hvítasunnudag, hinn 5. júní, en veðurguðirnir voru ekki sérlega hliðhollir. Kirkjan brann til grunna í upphafi árs árið 2010 en Vinir Krýsuvíkurkirkju stóðu fyrir endurbyggingu hennar.