Íslensku landsliðsmennirnir fagna sætum stórsigri á Frökkum á Evrópumótinu í Búdapest í janúarmánuði 2022.
Íslensku landsliðsmennirnir fagna sætum stórsigri á Frökkum á Evrópumótinu í Búdapest í janúarmánuði 2022. — Ljósmynd/Szilvia Micheller
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tvö lykilatriði vega þungt hjá íslenska landsliðinu í dag og gefa fyrirheit um að það geti náð stigvaxandi árangri á næstu árum.

VÍÐIR SIGURÐSSON

hefur verið fréttastjóri íþróttafrétta á Morgunblaðinu og mbl.is frá 2008 og starfað hjá Árvakri frá 2000. Áður var hann íþróttafréttamaður hjá DV, Þjóðviljanum og Dagblaðinu.

Eftir góða frammistöðu á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar 2022 þar sem Ísland lagði sterka mótherja á borð við Portúgal, Ungverjaland og Frakkland að velli, þrátt fyrir stöðugt fleiri forföll vegna kórónuveirusmita, hafa margir orðið til þess að spá Guðmundi Þ. Guðmundssyni og hans mönnum enn betra gengi á heimsmeistaramótinu sem hefst í Svíþjóð og Póllandi 11. janúar.

Þeir bjartsýnustu tala um raunhæfa möguleika á verðlaunasæti. Handboltaáhugamenn ætla að fjölmenna á leiki Íslands í Kristianstad og Gautaborg og ljóst er að langt er síðan stuðningur við liðið á stórmóti erlendis hefur verið jafnöflugur og útlit er fyrir á leikjunum í Svíþjóð.

Er innistæða fyrir þessari miklu bjartsýni? Eigum við landslið í dag sem getur fetað í fótspor „gullaldarliðsins“ sem náði í silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á Evrópumótinu í Austurríki 2010? Eða í það minnsta endað eina ferðina enn í hópi sex efstu liða á stórmóti?

Það fer ekki á milli mála að íslenska landsliðið er á réttri leið og það var afrek að ná sjötta sætinu á Evrópumótinu 2022. Þar komst Ísland í fyrsta skipti í átta ár í hóp sex efstu liðanna á stórmóti en það er lengsti biðtíminn eftir slíkum árangri frá því íslenska handboltaævintýrið hófst fyrir alvöru með sjötta sætinu á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 1984.

Tvö lykilatriði vega þungt

Tvö lykilatriði vega þungt hjá íslenska landsliðinu í dag og gefa fyrirheit um að það geti náð stigvaxandi árangri á næstu árum.

Annars vegar er stærsti hluti leikmannanna á mjög góðum aldri. Þeir eru flestir á aldrinum 22-28 ára og eiga því möguleika á að eiga langan og farsælan feril fyrir höndum.

Hins vegar eru flestir þeirra á mála hjá mjög sterkum félagsliðum í Evrópu. Átta leikmenn í hópnum sem fer á HM spila í þýsku 1. deildinni, sem er tvímælalaust sterkasta deild heims, og hinir spila í Frakklandi, Danmörku og Ungverjalandi og með toppliðum í Noregi og Sviss. Einn með Íslands- og bikarmeisturum Vals sem hafa gert það gott í Evrópudeildinni í vetur.

Fimm landsliðsmannanna sem eru á leið til Svíþjóðar leika með liðum sem spila í Meistaradeild Evrópu í vetur en í þeirri keppni eru aðeins sextán af bestu liðum álfunnar.

Íslenska landsliðið hefur sennilega sjaldan eða aldrei átt jafn breiðan hóp leikmanna sem spila með félagsliðum í fremstu röð í Evrópu, og þar með í heiminum.

Öflugt byrjunarlið

Skoðum aðeins byrjunarliðið sem Guðmundur getur stillt upp í fyrsta leik á HM í Svíþjóð:

Markmaður: Viktor Gísli Hallgrímsson, 21 árs og leikur með Nantes sem er í 3. sæti í Frakklandi og í 3. sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni.

Vinstra horn: Bjarki Már Elísson, 32 ára og leikur með Veszprém sem er efst í Ungverjalandi og í 2. sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni.

Vinstri skytta: Aron Pálmarsson, 32 ára og leikur með Aalborg sem er í 2. sæti í Danmörku og í 6. sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni.

Miðjumaður: Gísli Þorgeir Kristjánsson, 23 ára og leikur með Þýskalands- og heimsmeisturum Magdeburg sem eru í 4. sæti í Þýskalandi og í 3. sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni.

Hægri skytta: Ómar Ingi Magnússon, 25 ára, samherji Gísla hjá Magdeburg sem var kjörinn besti leikmaður þýsku 1. deildarinnar á síðasta tímabili og varð næstmarkahæstur, ásamt því að verða markakóngur EM 2022.

Hægra horn: Sigvaldi Björn Guðjónsson, 28 ára og leikur með Kolstad sem hefur unnið alla leiki sína í norsku úrvalsdeildinni í vetur.

Lína: Ýmir Örn Gíslason, 25 ára og leikur með Rhein-Neckar Löwen sem er í 3. sæti í Þýskalandi.

Síðan er hægt að stilla upp byrjunarliði númer tvö og í því gætu verið Björgvin Páll Gústavsson, Hákon Daði Styrmisson, Elvar Örn Jónsson, Janus Daði Smárason, Viggó Kristjánsson, Óðinn Ríkharðsson og Arnar Freyr Arnarsson.

Góð blanda af þessum tveimur liðum, auk öflugra manna sem einnig eru í hópnum, Ólafs Guðmundssonar, Elvars Ásgeirssonar, Kristjáns Arnar Kristjánssonar og Elliða Snæs Viðarssonar, er vissulega til þess fallin að auka tiltrú handboltaáhugafólks á því að landsliðið í dag geti komist í allra fremstu röð.

Tíu sinnum meðal sex bestu

Væntingar eru eitt, frammistaða er annað. Ísland hefur verið framarlega í flokki í heiminum, tiltölulega samfleytt, frá árinu 1984. Frá þeim tíma hefur íslenska karlalandsliðið tíu sinnum hafnað í sjötta sæti eða ofar á einhverju stórmótanna þriggja, Ólympíuleikum, Evrópukeppni og heimsmeistarakeppni. Áður náði Ísland sjötta sæti á HM árið 1961 og stimplaði sig þá inn í hóp handboltaþjóða þótt biðin eftir sambærilegum árangri yrði löng.

Fjórum sinnum hefur Ísland komist í undanúrslit, tvisvar á Ólympíuleikum og tvisvar í Evrópukeppni. Á heimsmeistaramótinu er hins vegar fimmta sætið enn sem komið er besti árangur Íslands frá upphafi en þeim áfanga náði liðið árið 1997, í Kumamoto í Japan. Inn á milli hafa síðan komið stórmót þar sem væntingarnar voru gríðarlega miklar en liðið náði síðan ekki að standa undir þeim.

Ómar tekinn við af Ólafi

Núverandi landsliðsmenn geta eftir sem áður horft til árangurs forvera sinna, mátað sig við þá og mætt til leiks á HM með það að keppikefli að ná svipuðum eða betri árangri. Rétt eins og þegar Ólafur Stefánsson fór fyrir íslenska liðinu sem komst tvisvar á verðlaunapall og var einn besti leikmaður heims, er örvhent skytta í forystuhlutverkinu. Nú er það Ómar Ingi Magnússon, sem hefur víða verið settur í hóp fimm til tíu bestu handboltamanna heims um þessar mundir, og þó hann sé ólíkur Ólafi sem leikmaður og karakter þá er hann á sama hátt sá sem getur dregið vagninn og gert samherja sína betri.

Liðið þarf að fara vel af stað á HM. Fyrstu tveir leikirnir, gegn Portúgal og Ungverjalandi, eru lykilleikirnir, því ef allt þróast á eðlilegan hátt tekur liðið úrslitin í þeim með sér í milliriðilinn. Þar verða Evrópumeistarar Svíþjóðar og Suður-Ameríkumeistarar Brasilíu stóru hindranirnar. Til að komast í átta liða úrslit, og sýna að það hafi verið innistæða fyrir bjartsýninni, þarf íslenska liðið líklega að vinna þrjá af þessum fjórum leikjum, og má ekki misstíga sig gegn lægra skrifuðum mótherjum.

Höf.: VÍÐIR SIGURÐSSON hefur verið fréttastjóri íþróttafrétta á Morgunblaðinu og mbl.is frá 2008 og starfað hjá Árvakri frá 2000. Áður