Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins (SI), segir að fyrirkomulag Reykjavíkurborgar hvað varðar útboð snjómoksturs sé ekki mjög gagnsætt.
„Við höfum haft samband við borgina og furðum okkur á orðræðunni í Reykjavík í tengslum við skort á verktökum og vinnuafli í snjómokstri,“ segir Björg og bætir við að SI séu reiðubúin að ræða við borgina til þess að finna lausnir ef áhuginn er til staðar.
Björg minnist á að opnuð voru tilboð 19. desember í útboði borgarinnar á snjómokstri á stofnanalóðum, og boðinn hefur verið út snjómokstur á göngustígum en óvíst sé hvernig fyrirkomulagið sé varðandi húsagötur. Spurð hvort ekki hafi verið opnað fyrir útboðið of seint segir Björg það vissulega vera frekar seint. „Miðað við það að það er verið að bjóða út mokstur á stofnanalóðum. Þegar komið er svona langt inn í desembermánuð, þá finnst mér það vera frekar seint. Maður sér að útboðin á vetrarþjónustu eru oft að fara fram fyrr á árinu, kannski á sumarmánuðum eða eitthvað slíkt.“
Annað fyrirkomulag
Hún nefnir að annað fyrirkomulag sé í Kópavogsbæ en þar sé rammasamningur. „Þar hefur til að mynda framkvæmdin verið góð og gengið vel.“ Spurð af hverju fyrirkomulagið sé ekki eins á milli sveitarfélaga segir Björg að sveitarfélögin hafi forræði á málinu. Hún segist ekki vita af hverju Reykjavíkurborg fari ekki þá leið að vera með rammasamningsfyrirkomulag. Með því eru ákveðnir forgangsbirgjar, þ.e.a.s. listi yfir fyrirtæki, og hringt er í eins marga og þarf í hvert sinn. „Það virðist vera samið við færri aðila í Reykjavík.“
Björg segir að lokum að orðræða Reykjavíkurborgar um að það sé skortur á verktökum og vinnuafli sé furðuleg. „Við sjáum að það hefur verið góð reynsla hjá nágrannasveitarfélögum af snjómokstri, bæði þar sem starfsumhverfi verktakanna og þjónustustig íbúanna er gott. Það er að okkar mati engin ástæða fyrir Reykjavíkurborg að auka innvistun með því að ráða starfsfólk og kaupa tæki til að sinna snjómokstri. Fyrirtækin, sem eru sérhæfð í þessu, eru fullfær um að sinna þessu. Það ætti frekar að vera áherslumál að rýna og eftir atvikum endurskoða núgildandi samninga,“ segir hún og bætir við að taka ætti tillit til þess sem gengur vel.