Húsavík Ljós skín.
Húsavík Ljós skín.
Öll heimili, fyrirtæki og stofnanir á Húsavík geta nú tengst ljósleiðara Mílu og þar með nýtt sér 1Gb/s tengingu. Verkefnið hófst árið 2019. Nú í lok árs var lokið við síðustu tengingarnar og þar með er Húsavík að fullu ljósleiðaravædd Húsavík er…

Öll heimili, fyrirtæki og stofnanir á Húsavík geta nú tengst ljósleiðara Mílu og þar með nýtt sér 1Gb/s tengingu. Verkefnið hófst árið 2019. Nú í lok árs var lokið við síðustu tengingarnar og þar með er Húsavík að fullu ljósleiðaravædd

Húsavík er nú, segir í tilkynningu frá Mílu, komið í hóp bæjarfélaga þar sem Míla hefur lokið að fullu við lagningu ljósleiðara. Önnur bæjarfélög eru m.a. Selfoss, Skagaströnd, Hofsós, og Stokkseyri. Þá er lagning ljósleiðara til heimila í Reykjanesbæ og á Egilsstöðum er langt komin.