Lífsgleði Að byrja nýtt ár 2. janúar á þessari hressilegu áskorun er því bara skemmtilegt, segir Erla Guðmundsdóttir, hér ofarlega í stiganum góða.
Lífsgleði Að byrja nýtt ár 2. janúar á þessari hressilegu áskorun er því bara skemmtilegt, segir Erla Guðmundsdóttir, hér ofarlega í stiganum góða. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Samanlagt 365 ferðir og helst fleiri ættu ekki að verða nokkurt einasta mál

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Árið byrjar með áhlaupi og útlit er fyrir góða þátttöku. Við verðum enga stund að ná settu marki og vonandi gott betur,“ segir Erla Guðmundsdóttir, íþróttafræðingur og heilsumarkþjálfi í Kópavogi. Að frumkvæði hennar ætlar fjöldi fólks þar í bæ að bregða undir sig betri fætinum 2. janúar næstkomandi og hlaupa um Himnastigann svonefnda. Ætlunin er að samanlagt verði ferðirnar upp og niður stigann ekki færri en 365, jafn margar og dagar ársins. Hver og einn þátttakandi getur farið jafn margar ferðir og sá eða sú kýs; þátttakan og hreyfingin eru aðalatriðið.

Umferðarmiðstöð í brekkunni

Himnastiginn svonefndi er þekkt kennileiti í Kópavogi. Þetta er tröppustígur sem liggur frá skátaheimilinu við Digranesveg og þaðan upp háa og bratta brekku. Milli enda er hækkunin 52 metrar, sem jafngildir nítján hæða byggingu. Tröppurnar í stiganum eru alls um 207 og á 360 metra langri leið þverar stígurinn Hlíðar-, Brekku- og Heiðarhjalla og endar við Digranesheiði. Braut þessi varð til á árunum 1995 til 2000 jafnhliða uppbyggingu íbúðahverfis í Digraneshlíðum.

Íþróttafólk komst fljótt upp á lagið með að nota sér þessa aðstöðu meðal annars til þrekæfinga svo þetta er í raun einn vinsælasti útivistarstaðurinn á höfuðborgarsvæðinu. Á öllum tímum er fólk þarna á ferðinni. Á Covid-tímanum þegar líkamsræktarstöðvar voru lokaðar og samgöngutakmarkanir hvarvetna var þó alltaf hægt að komast í Himnastigann sem þá á góðum degi var eins og fjölfarin umferðarmiðstöð.

Erla Guðmundsdóttir hefur alla tíð stundað margvíslega hreyfingu og sótt sér þannig orku til dagsins anna. Hún er íþróttakennari við Menntaskólann við Hamrahlíð í Reykjavík. Hefur í áraraðir tekið börn og foreldra á námskeið í ungbarnasundi. Tekur einnig fólk í heilsumarkþjálfun, það er þau sem vilja taka sér tak með hreyfingu og breyttum lífsstíl en þurfa aðhald og góðar leiðbeiningar svo takmörk og árangur náist.

Hreyfa mig á hverjum degi

„Fyrir árið 2022 var takmark mitt að hreyfa mig eitthvað á hverjum degi og þá helst ekki minna en í hálftíma, sem er í raun heppilegt markmið. Þetta hefur mér tekist. Aðeins einn dagur hefur dottið út, það var 9. maí þegar ég lá heima í flensu,“ segir Erla. „Í þessu verkefni ársins hefur allt mögulegt komið til. Öll hreyfing er góð, hverju nafni sem hún nefnist. Ég hef til dæmis tekið götu- og utanvegahlaup, farið í crossfit, sund, hjólreiðar, jóga og núna á síðustu dögunum hafa gönguskíðin komið sterk inn. Ég finn að þetta er alveg frábært fyrir heilsuna og vil láta orðið berast. Þess vegna meðal annars efndi ég til þessarar áskorunar sem ég hlakka mikið til.“

Hlaupið á sjö mínútum

Um 80 manns höfðu í gær skráð sig til þátttöku í Himnastigaferðinni, fólk sem gjarnan ætlaði að taka eina til tvær ferðir upp og niður stigann. Hlaupandi ætti fólk að komast um stigann fram og til baka á 6-7 mínútum en 10-11 mínútum gangandi. Í gegnum Facebook-síðu viðburðarins skráir fólk fjölda ferða sinna en hægt er að taka sprettinn frá því klukkan 6 um morguninn fram til kl. 23.

„Fyrir utan fólk sem hefur skráð sig til þátttöku veit ég líka um að minnsta kosti tvo hlaupahópa hér í Kópavogi sem ætla að reyna sig við Himnastigann. Samanlagt 365 ferðir og helst fleiri ættu ekki að verða nokkurt einasta mál og Kópavogsbær hefur staðið sig frábærlega í því að moka snjó af tröppum stigans og næsta nágrenni hans. Að byrja nýtt ár 2. janúar á þessari hressilegu áskorun verður því bara skemmtilegt.“

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson