Teigarhorn Leifur Steinarsson, starfsmaður Veðurstofu Íslands, málar úrkomumælinn í júlímánuði árið 1968.
Teigarhorn Leifur Steinarsson, starfsmaður Veðurstofu Íslands, málar úrkomumælinn í júlímánuði árið 1968. — Ljósmynd/Flosi Hrafn Sigurðsson
Hinn 24. nóvember síðastliðinn var afhjúpaður á Teigarhorni í Berufirði viðurkenningarskjöldur frá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni fyrir yfir 100 ára samfelldar veðurathuganir á staðnum. Teigarhorn rataði í sögubækurnar sumarið 1939, þegar þar mældist hæsti hiti sem mælst hefur á Íslandi, 30,5 stig

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Hinn 24. nóvember síðastliðinn var afhjúpaður á Teigarhorni í Berufirði viðurkenningarskjöldur frá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni fyrir yfir 100 ára samfelldar veðurathuganir á staðnum. Teigarhorn rataði í sögubækurnar sumarið 1939, þegar þar mældist hæsti hiti sem mælst hefur á Íslandi, 30,5 stig.

Í raun hafa veðurathuganir átt sér stað í Berufirðinum lengur, eða samfleytt í 150 ár. Í nóvember 1872 hófust veðurathuganir á Djúpavogi, mælingar voru fluttar að Teigarhorni árið 1881 og hafa verið þar allt fram á þennan dag. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Einungis er ein önnur veðurstöð á landinu sem hefur fengið slíka veðurkenningu frá stofnuninni, veðurstöðin í Stykkishólmi. Þar hafa verið gerðar samfelldar mælingar frá árinu 1845.

Í fyrstu var það Níels Pétur Weywadt sem sá um veðurathuganir á Teigarhorni og dóttir hans Nicoline Waywadt tók svo við mælingunum eftir hans daga og sá um þær til ársins 1921. Næstu 75 árin voru það feðgarnir Jón Kr. Lúðvíksson og Kristján Jónsson sem sinntu athugunum. Og síðastur var Herbert Hjörleifsson, sem gerði athuganir á árunum 1995 til 2009. Nú hefur tæknin að mestu leyst mannsins hönd af hólmi í veðurathugunum. Sjálfvirk veðurstöð var sett upp á Teigarhorni árið 2009 sem mælir hita, vind og lofþrýsting. Og nú í nóvember var sjálfvirkur úrkomumælir settur upp á Teigarhorni.

Boðið var til hádegisfundar í tilefni af áfanganum á Fólkvangi Teigarhorns. Kristín Björg Ólafsdóttir, sérfræðingur á sviði veðurfarsrannsókna á Veðurstofunni, flutti þar erindi og fór m.a. yfir mikilvægi viðurkenningarinnar og hvers vegna Alþjóðaveðurfræðistofnunin telur ástæðu til að verðlauna slíkar mælingar. „Með slíku er undirstrikað mikilvægi langra og samfelldra veðurathugana á völdum veðurstöðvum en langar, samfelldar mælingar eru raunveruleg vísinda- og menningarleg verðmæti fyrir samfélagið. Öflun og varðveisla slíkra upplýsinga tryggir þekkingu núlifandi og komandi kynslóða um veðráttu og loftslagsbreytingar fyrr og nú. Fyrir utan auðvitað að slíkar upplýsingar eru uppistaðan í veðurspám og loftslagsvísindum öllum. Það eru þær sem setja núverandi loftslagsbreytingar í samhengi og eru forsenda árangursríkra aðgerða á því sviði,“ sagði Kristín m.a.

Hitametið er 30,5 stig

Hæsti hiti sem mælst hefur á Íslandi mældist á Teigarhorni hinn 22. júní 1939 þegar tilkynnt var um 30,3 stiga hita. Jón Kr. Lúðvíksson las af mælinum þann dag og skrifaði eftirfarandi færslu með: „22. þ.m. steig hiti hátt eins og skýrsla sýnir. Var vel að gætt að sól náði ekki að hita mælira. Tel ég því hita rjétt mælda.“ Þegar hámarksmælir var tekinn í notkun sýndi hann of lágan hita um 0,2 stig og var hámarkið því hækkað. Hitametið stendur því enn þann dag í dag, 30,5 stig.

Höf.: Sigtryggur Sigtryggsson