Sigursæll Snorri Steinn Guðjónsson á sigurstundu með Val.
Sigursæll Snorri Steinn Guðjónsson á sigurstundu með Val. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Snorri Steinn Guðjóns­son hef­ur fram­lengt samn­ing sinn við Val og mun stýra karlaliði félagsins út keppn­is­tíma­bilið 2024-2025. Snorri tók við þjálfun Valsliðsins árið 2017 og lauk þar á fyrsta tímabilinu löngum og farsælum ferli sínum sem leikmaður

Snorri Steinn Guðjóns­son hef­ur fram­lengt samn­ing sinn við Val og mun stýra karlaliði félagsins út keppn­is­tíma­bilið 2024-2025. Snorri tók við þjálfun Valsliðsins árið 2017 og lauk þar á fyrsta tímabilinu löngum og farsælum ferli sínum sem leikmaður. Valsmenn unnu alla þrjá titla síðasta tímabils, 2021-22, Íslandsmótið, bikarinn og úrvalsdeildina, en þeir urðu einnig tvöfaldir meistarar, í deild og bikar, tímabilið 2020-21 undir stjórn Snorra.