Bestur Pelé var á hátindi frægðar sinnar í úrslitaleik HM í Mexíkó sumarið 1970 þegar hann skoraði eitt mark og lagði upp tvö í úrslitaleiknum. Brasilía vann Ítalíu 4:1 og Pelé var besti leikmaður keppninnar.
Bestur Pelé var á hátindi frægðar sinnar í úrslitaleik HM í Mexíkó sumarið 1970 þegar hann skoraði eitt mark og lagði upp tvö í úrslitaleiknum. Brasilía vann Ítalíu 4:1 og Pelé var besti leikmaður keppninnar. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hvar varstu þegar þú fréttir að Kennedy hefði verið skotinn í Dallas? Það muna allir sem voru komnir til vits og ára í nóvember 1963. Hvar varstu þegar þú fréttir að John Lennon hefði verið skotinn í New York? Það muna allir sem voru komnir til vits og ára í desember 1980

Pelé

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Hvar varstu þegar þú fréttir að Kennedy hefði verið skotinn í Dallas? Það muna allir sem voru komnir til vits og ára í nóvember 1963.

Hvar varstu þegar þú fréttir að John Lennon hefði verið skotinn í New York? Það muna allir sem voru komnir til vits og ára í desember 1980.

Hvar varstu þegar þú fréttir af friðsælu andláti Pelé á sjúkrabeði í São Paulo að kvöldi 29. desember 2022?

Án þess að fara frekar út í samanburð á Kennedy, Lennon og Pelé, forseta, listamanni og fótboltamanni, þá var fréttin um að brasilíski knattspyrnusnillingurinn væri allur, um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld, sú fyrirferðarmesta í fjölmiðlum um allan heim næstu klukkutímana. Næsta sólarhringinn. Athyglin var meiri en margur þjóðarleiðtoginn hefði fengið. Þetta var forsíðufrétt heimsbyggðarinnar þrátt fyrir að maðurinn væri 82 ára gamall og ljóst hefði verið síðustu dagana hvert stefndi.

Og, já, það má alveg skjóta að þeirri merkilegu tilviljun að bæði Lennon og Pelé fæddust í október árið 1940, með nokkurra daga millibili.

Afrekaskrá Pelé ein og sér er löng og viðamikil og hér verður aðeins stiklað á því stærsta en varðandi ítarlegri frásagnir af helstu afrekunum er bent á greinina: Pelé er látinn, sem birtist á mbl.is í fyrrakvöld.

Einstök afrekaskrá

Heimsmeistari með Brasilíu 1958, 1962 og 1970. Skoraði tvö mörk í úrslitaleik HM 1958, þá 17 ára gamall, og valinn besti leikmaður HM 1970. Valinn besti ungi leikmaður HM 1958 og næstbesti leikmaður keppninnar. Varð fyrstur til að skora á fjórum heimsmeistaramótum.

Hlaut Gullboltann, Ballon d’Or, sem besti knattspyrnumaður heims 1958, 1959, 1960, 1961, 1963, 1964 og 1970.

Sigurvegari í Intercontinental Cup, keppni bestu félagsliða Suður-Ameríku og Evrópu, með Santos 1962 og 1963 eftir sigra á Benfica og AC Milan.

Sigurvegari í Intercontinental Supercup, keppni milli fyrri sigurvegara í áðurnefndri keppni, árið 1968 eftir sigur á Inter Mílanó í úrslitaleik.

Brasilískur meistari með Santos 1961, 1962, 1963, 1964, 1965 og 1968.

Markakóngur í Brasilíu 11 sinnum frá 1957 til 1973.

Markamet hans í brasilísku deildinni, 58 mörk í 38 leikjum árið 1958, hefur aldrei verið slegið.

Bandarískur meistari með New York Cosmos 1977.

Deildi titlinum besti knattspyrnumaður 20. aldarinnar hjá FIFA með Argentínumanninum Diego Maradona.

Skoraði 775 mörk í 840 opinberum mótsleikjum og samtals 1.281 mark í 1.363 leikjum á ferlinum. Hann á markamet brasilíska landsliðsins, 77 mörk í 92 leikjum, en Neymar jafnaði það fyrr í þessum mánuði.

Þó einhverjum kunni að finnast þessi upptalning löng og glæsileg þá eru þetta bara allra stærstu atriðin á ferilskrá Pelé sem var tengdur fótboltanum til hinsta dags og fylgdist með heimsmeistarakeppninni í síðasta skipti af sjúkrabeði í São Paulo fyrr í þessum mánuði.

Besti leikur gegn Benfica

Sjálfur sagði Pelé að sinn besti leikur hefði verið þegar Santos vann Evrópumeistara Benfica 5:2 í Lissabon í seinni úrslitaleik liðanna í áðurnefndri keppni Suður-Ameríku og Evrópu árið 1962. Santos hafði unnið nauman heimasigur, 3:2, í fyrri leiknum en Pelé fór hamförum í Lissabon og kom brasilíska liðinu í 5:0 með þrennu. Hann gerði fimm af átta mörkum Santos í leikjunum tveimur.

Íþróttamaður aldarinnar

Fjölmargir fjölmiðlar og fleiri aðilar um allan heim kusu hann íþróttamann 20. aldarinnar, þar á meðal alþjóðaólympíunefndin, enda þótt Pelé hefði aldrei keppt á Ólympíuleikum, þar sem atvinnumenn voru ekki gjaldgengir. Hann fékk ekki síður fjölda viðurkenninga eftir að ferlinum lauk en á meðan hann lék fótbolta sem atvinnumaður frá 15 ára aldri og þar til hann lék kveðjuleikinn 37 ára gamall.

Það var við hæfi að sá leikur var á milli Santos og New York Cosmos á troðfullum Giants-leikvanginum í New York 1. október 1977. Fram að komu Pelé til Bandaríkjanna árið 1975 höfðu fáir þar í landi einhverja þekkingu á knattspyrnu, eða „soccer“ eins og íþróttin kallast þar, en áhuginn fyrir brasilíska snillingnum smitaði út frá sér og kom knattspyrnunni á kortið í þessu stóra landi.

Þjóðargersemi

Ríkisstjórn Brasilíu og forseti lýstu Pelé formlega sem „þjóðargersemi“ árið 1961 þegar hann var rétt tvítugur að aldri og það segir sitt um stöðu hans sem þjóðhetju í landinu. Hann var um leið fyrirmynd óteljandi ungmenna í heimalandi sínu sem sáu hvernig var hægt að brjótast frá fátækt til frægðar. Pelé nýtti sér líka frægðina til góðra verka því hann barðist fyrir og studdi alls konar þróunarverkefni, heima sem erlendis.

Knattspyrnuritstjóri The Times, Henry Winter, skilgreindi Pelé og áhrif hans í fáum en meitluðum orðum í gær: „Pelé tilheyrði ekki bara Brasilíu. Hann tilheyrði heimsbyggðinni.“

Höf.: Víðir Sigurðsson