— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Desember Óhætt er að segja að veturinn hafi mætt á landið í desember með tilheyrandi frosti og snjókomu. Fjölmargir festu bíla sína, ófært var víða um land og fólk lenti í ýmsum hremmingum. Í lok árs fór svo frostið niður í -22,8 gráður í höfuðborginni.