— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ágúst Hinn 3. ágúst fór að gjósa á ný á Reykjanesi, í þetta sinn í Meradölum. Sjónarspilið var magnað, ekki síst úr lofti. Eldgosið var ekki langlíft og entist aðeins í átján daga. Fjölmargir náðu þó að berja það augum og fóru mörg þúsund manns á dag gangandi að gosinu langa leið.