Sjálfboðaliði Haraldur Ingólfsson fékk nýju verðlaunin fyrstur.
Sjálfboðaliði Haraldur Ingólfsson fékk nýju verðlaunin fyrstur. — Morgunblaðið/Hákon
Haraldur Ingólfsson var útnefndur íþróttaeldhugi ársins 2022 af ÍSÍ en þetta var tilkynnt í hófi Samtaka íþróttafréttamanna í Hörpu í fyrrakvöld. Verðlaunin voru afhent í fyrsta skipti en Haraldur fær þau fyrir mikið sjálfboðastarf fyrir Þór og Þór/KA á Akureyri í fótbolta, handbolta og körfubolta

Haraldur Ingólfsson var útnefndur íþróttaeldhugi ársins 2022 af ÍSÍ en þetta var tilkynnt í hófi Samtaka íþróttafréttamanna í Hörpu í fyrrakvöld. Verðlaunin voru afhent í fyrsta skipti en Haraldur fær þau fyrir mikið sjálfboðastarf fyrir Þór og Þór/KA á Akureyri í fótbolta, handbolta og körfubolta. Þrír sjálfboðaliðar voru valdir úr hundruðum tilnefndra. Hin tvö voru Friðrik Þór Óskarsson úr ÍR og Þóra Guðrún Gunnarsdóttir úr Birninum.