Endurkoma Kenneth Larsen er tekinn við íslenska landsliðinu á ný.
Endurkoma Kenneth Larsen er tekinn við íslenska landsliðinu á ný. — Ljósmynd/BSÍ
Daninn Kenneth Larsen hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari karla- og kvennaliða Íslands í badminton. Larsen tekur til starfa 1. janúar 2023 og mun starfa fyrstu vikurnar við hlið Helga Jóhannessonar, sem hefur verið landsliðsþjálfari síðan 2019

Daninn Kenneth Larsen hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari karla- og kvennaliða Íslands í badminton. Larsen tekur til starfa 1. janúar 2023 og mun starfa fyrstu vikurnar við hlið Helga Jóhannessonar, sem hefur verið landsliðsþjálfari síðan 2019.

Larsen var áður landsliðsþjálfari Íslands frá 2004 til 2007 og samkvæmt tilkynningu frá Badmintonsambandi Íslands hlakkar hann til þess að vinna aftur með íslenskum þjálfurum og spilurum.